Straumar - 01.07.1927, Síða 16

Straumar - 01.07.1927, Síða 16
110 STBAUMAR Krist, guðs son og frelsara mannanna, samkvæmt heilagri ritninguu. Vildu sumir ræðumenn að tillaga þessi væri ekki bor- in upp, en urðu í minni hluta. Var tillagan þá borin und- ir atkvæði og samþykt með 21 atkv. (4 atkv. voru á móti). Var þá dagskrá fundarins lokið. Að fundarlokum flutti biskup bæn og var síðan sungið versið: „Son guðs ertu með sanniu. Var þá prestastefnunni slitið. Kl. 9 um kvöldið komu synódusmenn saman á heim- ili biskups til kaffidrykkju. Ský. Skýin eru sem óráðin gáta. Þau koma skrýdd dýr- legu geislaskrúði, og þau hverfa aftur í blámafjarska him- ingeimsins. Þau eru sem fjöll á undralöndum víðáttunnar og þó eru þau hverful sem snjór í sólbráð. Þau eru sem vonahallir á vesturleiðum, en hallirnar hrynja, og þar stendur ekki steinn yfir steini. Þau bærast fyrir léttasta vindblæ, en eru stundum efri öllum stormum í hálofti. Þau eru sífelt hin sömu og þó altaf ný. í æsku sjáum vér sýnir í skýjunum, eins og Leonardo da Vinci á gömlum, sprungnum múrum, eða kerlingar, sem spá í kaffikorg. Þær sýnir eru dásamlegar, settar saman af jarðneskum framtíðarvonum og óljósri þrá, sem á upptök sín handan hins sýnilega heims, handan rúms og tíma. En þegar vér eldumst, breytast sýnirnar oftast. Þá sjáum vér þar aðeins tákn hinnar eilífu hringferðar lífs og dauða. Og dauðinn gnæfir yfir lífið, af því að vér óttumst hann. En er þá nokkur dauði til í þeirri merkingu, sem vér leggjum í það orð, útslokknun lífsins, andstæða lífs- ins? Nei, ummyndun lífsins væri réttara að nefna hann. Alt er breytingum háð, og alt er þó æ hið sama, Hið

x

Straumar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.