Straumar - 01.08.1928, Page 6

Straumar - 01.08.1928, Page 6
STRAUMAR 116 Hamai* <)£>■ sig*ð. ii. Yfir Punkaharju, fegursta stað Finnlands, ljómar skín mdi júnídagur. Friðsælar, skógivaxnar eyjar, spegl- ast í logntærum vötnum, og hvítir bátar líða fram og aftur um vatnsflötinn fullir af sumarklæddu fólki. I dálít- illi hvilft niður við vatnið stendur gistihúsið. Alt í kring- uin það standa hávaxin furutré, ,,eins og risar á verði“ og þegar komið er tíu faðma á burt frá því sést það ekki lengur. Náttúran ríkir hér einvöld og voldug eins og hún hefði aldrei verið troðin mannafótum. Hér má ekki gera vegspotta, ekki róta við steini. Punkaharju er helgað friði og hvíld. Eg geng upp snarbrattan skógai'ásinn. Furðu há, gömul furutré standa þar í beinum röðum eins og súlur í gotneskri kirkju. Skógargrunnurinn er gulbrúnn af gömlu hálfrotnuðu laufi. Það skrjáfar og hvískrar í hverju spori. Annars er hér þögn og ljúfur svali. Og undir laufþungum krónum Punkaharju ríkir ei- líft hálfrökkur, — friður. Og við sem búum hér um stundarsakir eruni öll kom- in til þess að leita okkur friðar; erum flóttamenn sinn úr hverri áttinni, — frá Berlín, London, New York, Stokk- hólmi, Kaupmannahöfn og frá Islandi, ólík að skapferli, hugsunarhætti, efnum og lífsvenjum, ólík að öllu nema fögnuðinum yfir því að vera um stundarsakir sloppin úr drepandi heljarklóm tískulífsins, menningarlífsins, borga- lífsins. Og við blessum Punkaharju hvert á sinn hátt. Þegar við mætumst við borðið að kveldi, eru hugir okkar fullir af rólegri gleði. Við segjum hvert öðru hvað á daginn hafi drifið og það er hlegið og spaugað. Jafn- vel maðurinn, sem eg hefi aldrei talað við, er vinur minn. Augu hans segja: „njóttu dagsins vel“, þegar hann mætir mér. Eg veit ekki nafn hans. Ungur maður og ung kona ganga snemma til hvílu að kveldi. Þau eru nýgift. Og mér finst hvert mannsbarn í salnum óska þeim til hamingju í hljóði, — hlýtt og öfundlaust. í Punkaharju er friður.

x

Straumar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.