Straumar - 01.08.1928, Side 13

Straumar - 01.08.1928, Side 13
S T I! ,\ 1J M A R 1-23 mynd játningarinnar er þar notað unicus. þessi tvö orð, sem svara til orðanna eingetinn sonur og einkasonur í íslenzku, eru því notuð jöfnum höndum og enginn munur gerður á merking þeirra. Af þessu öllu er það augljóst, að alstaðar œtti að þýða orðið eins, og samkvœmt íslenzkri málvenju vœri orðið einkasonur réttast. það myndi og koma í veg fyrir þennan leiðinlega mis- skilning, sem getið var í upphafi. Kenningunni um yfimáttúr- legan getnað Jesú geta menn auðvitað haldið jafnt eftir sem áð- ur. ])aö er henni alveg óviðkomandi. Að lokum mœtti henda á eitt, sem sýnir hve fáránlegur mis- skilningur það er, að i orðinu „eingetinn" liggi það, að Jesús hafi átt mannlega móðtu- aðeins en engan mannlegan föður. því að ef svo væri, þá ætti hann vitanlega að heita eingetinn sonur Maríu. En svo er ekki, heldur er hann nefndur eingetinn sonur guðs, og er mcð því hent á hina einu rcttu merking orðsins. Magnús Jónsson. Krino*sjá Útrýming feðratrúarinnar. Hr. Árni Jóhannsson lýsir óá- nregju sinni yfir því í 22. thl. Bjarma þ. á., að „hin nýja kenn- ing“ só sama sem valdboðin i landinu undir yfirskini frjáls- lyndis, „en feðratrú vorri" útrýmt. Á hann sennilega við það að við guðfræðideild Háskólans liafa verið kennarar, sem ekki liafa verið talsmenn neinnar kúgunarstefnu í trúmálum og hallast meir að hinum nýrri skoðunum. Nú hafa verið valdir til þeirra embretta þeir menn, sem taldir hafa verið vitrastir og hest mentaðastir til þeirra lduta, og vœri því hœgt að draga þá einu ályktun af því, að slíkir menn vilji ekki ljá liðsinni sitt guðfræði Á. Jóh. Bœði vegna þess að þessir menn skýrgreina evangelisk-Iúterska trú alt öðru vísi en Á. Jóh. og margs annars verður rikisvaldinu eigi legið á hálsi fyrir það, að velja þessa monn í embætti. Miklu skynsamlegra vreri af Bjanna, að salca guð almáttugan um það, að hafa ekki skapað þessa menn og alla aðra á nákvœmlega sama vitsmunastigp og Á. Jóh. til þess að hann gœti vorið ánægður með guðfræði þeirra og kristn- ina i landinu. Ekki hvarflar það í huga Á. Jóh. sem skynsam- legast vreri, að láta sér detta í hug að eitthvað kunni að vera hogið við þann málstað, sem mentaðir menn og gáfaðir vilja

x

Straumar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.