Straumar - 01.05.1929, Blaðsíða 11

Straumar - 01.05.1929, Blaðsíða 11
STRAUMAR 73 sjálft við alt og alla, nema hræsnina og hræsnarana. Og víst er það,að vægur og ástríkur hefir hann verið Nikódemusi og Jósef af Arimaþia og marga fleiri, þótt þeir væri Farisear og skrlft- lærðir, og héldi áfram að vera í æðsta ráði Gyðinga og yfirgefa ekki sinn söfnuð, eða höfnuðu sinni biblíulegu barnatrú; því að annars er óhugsandi að slíkir menn hefðu gerst vinir hans og lærisveinar. En þeir liafa iika verið einlægir og þráð að finna sannleikann í „lögmálinu og spámönnunum". En Jesús — hann liaíði bæði þekking og vald til að greina í'étt á milli hræsnara og hreinskilinna; því að guðspjöllin fullyrða, að hann hafi lesið hugsanir og séð iijörtu manna. En slikt veit eg ekki til að segja megi um nokkurn annan, nema „Föðurinn" og „Andann", sem Jesús sjálfur kennir sig við. En hér af leiðir þá líka, að enginn annar er, né getur verið bær um að dæma um hugi og hjörtu annara manna, né haft rétt til vægðarleysis eða háðulegra ummæla um insta liug og hjarta annara, eða bregða þeim um fáfræði og fáfræðiástundun, nema þá eitthvað komi ótvirætt. frarn um slíkt í orði eða verki; og þá ekki heldur nýguðfræðingar gagnvart gamalguðfræðing- um. peim „gömlu“ er oft núið um nasir, að þeir séu ófrjáls- lyndir, þröngsýnir og þaðan af verra, ef þcir dirfast að bæra sig, eða jafnvel að þegja og liika við að gleypa tormeltar, nýjar staðhæfingar, sem höfundar þeirra og fylgjendur virðast vera sannfærðir um. Og vera má, að þetta kunni satt að vera stund- um og um sumt. En er það þá frjálslyndi, er það víðsýni eða kanske nærgætni og umburðarlyndi, eða þekking og skilningur sannleikans um mannlegt eðli, þegar þeir „nýju“ og ungu dæma þá „gömlu" fáfróða ,og huglausa hræsnara fyrir það, að þeir vilja ekki né geta hlaupiö strax frá barnatrú sinni og „hjart- fólginni sannfæringu", og sumir eflaust aldrei hér i lifi, og þola þeim ekki að hafa aðra trú eða skoðun en þeir sjálfir? Er þetta frjálslyndi eða víðsýni, eða kristilegt hjá einum, fremur i-n öðrum? Nei, góðir bræður, þetta á og má ekki svo til ganga. Við megum elcki eigast við og deila um ágreiningsefni vor yfirleitt, og allra sízt í trúarefnum, sem flest eru enn full af lcyndar- dómum, og það heilögum, guðdómlegum leyndardómum, og ekki verjast og berjast hver fyrir sínum málstað á þennan hátt, sem þegar er lýst, og allra sízt í þjónustu og nafni Frelsarans, sem við, eflaust allir, elskum og viljum þóknast og þjóna sjálfum okkur og sem flestum öðrum til allrar blessunar. Við höfum allir jafnt allar frumheimildir hinar sömu um hann og lif hans og lijálpræðisorð og verk, þar sem er Nýjatestamentið og einkum guðspjöllin, svo að varla getur náð nokkurri átt að bera nokkr- um kristnum manni, og því síður presti, fáfræði á brýn í þess-

x

Straumar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.