Straumar - 01.05.1929, Síða 17

Straumar - 01.05.1929, Síða 17
STKAUMAR 79 inu hversu fagnaðarlaus og galtóm sú lifsstefna var, sem flutt var af Nietzsche og fleirum fians likum. Hún hefir sannfært mannanna börn um það, að mark þeirra er það ekki að frarn- leiða „ofurmenni", sem standi með hœl sinn á hálsum hinna veikari. En vitanlega eru ætíð að koma fram menn með nýjar kenningar og ný stefnumið, sem hver stúdent þarf að kynna sér. Vitanlega væri hjálp í þvi, að v.era leiddur við hönd sér af sínum kennurum og að vera fræddur um það, hver rök fylgi stefnu hverri, en þó tel eg hitt æskilogra, að hver stúdent brjót.i sér sjálfur veg til aukins skilnings á nýjustu vandámálum og viðfangsefnum. Slikt reyna allir áhugasamir nemendur. Jafnvel þó að fræðslufyrirkomuiag guðfræðideildarinnar væri eitthvað úrelt, er ærið svigrúm gefið hverjum ötulum nemanda að þroska sig i hverja þá átt, sem hugur hans girnist helzt. Hann á að- gang að ágætu hókasafni. Hann á opna leið að dyrum hvers prófessoranna, sem er, og gefa þeir eftir beztu vitund greiðlega leiðbeiningar um alt það, er náminu viðkemur. P. p. Hver drap Goliat? Mikið fjaðrafok hefir orðið í ensku kirkj- unni út af „New Commentary on the Holy Scripture", sem Charles Gore biskup, ásamt fimmtíu meðritstjórum hefir gefið út. Er þar meðal annars dregð i efa, að Davíð hafi vegið Goliat (sbr. 2 Sam. 21. 19), að jörðin hafi verið sköpuð og heimurinn allur á sex dögum. Nóaflóðið hyggja þeir að naumast hafi tekið yfir allan hcim og telja mjög mikinn vafa á að Móses hafi skrifað alt fimmbókarritið, þar sem meðal annars er skýrt frá dauða hans sjálfs. Alveg neita þeir sögunni um Babel, og Metú- sala þykir þeim hafa orðið lygilega gamall. Balthazar segja þeir að hafi enginn verið til og leggja að jöfnu söguna uin ösnu Bileams og hest Achillesar, sem bæði kváðu hafa spáð fyrir um ófarir húsbændanna. Ensku blöðin hafa staðið á öndinni yfir riti þessu og húast nú vist bráðlega við dómsdegi. Jtví jafnvel — segja þau :— ka'l- ar skýringari'itið söguna um Jónas, er lifði í kviði hvalfiskj- arins, æfintýri! Mikil er nú vantrúin að verða! það er merkilegt fyrirbrigði, og virðist bera iélegan vitnis- burð þekkingu allri og kennimensku ensku klerkanna, að dag- blöðin skuli glápa á slíkt rit eins og tröll á heiðríkju, og alþýða manna verður hissa, er hún heyrir slíkar skoðanir nefndar. því að síðan á dögum Wellhausens, hefir öllum sæmilega mentuðum guðfræðingum verið þetta ljóst — og allir vísinda- legir guðfræðiskólar hafa um fjórðung aldar komist mjög að sömu niðurstöðu og skýrngarrit þetta. Segir „The CTmrchmann" sem er frjálslynt málgagn biskupakirkjunnar, að engum guð- fræðingi, sem útskrifast hafi síðustu 25 árin, muni koma þess- ar skoðanir á óvart. „Eri vér húunist við því“, bætir ritið við,

x

Straumar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.