Straumar - 01.05.1929, Blaðsíða 18
80
STRAUMAR
„að margir klerkar muni finna til þungrar ábyrgðar yfir því, að
gefa söfnuðum sínum nokkuð til vitundar um niðurstöður bibl-
íurannsóknanna. Einmitt það, að slikar nýjungar koma fyrst á
óvart í dagblöðunum, sýnir hvað glegst þenna heimskulega ótta
þeirra við að „rifa niður trú safnaðarins". En eina afloiðing’ii
af þessu og svar allra skynsamra manna við slíkum ótta prest-
anna er auðvitað vaxandi vantraust á kennimensku þeirra og
sennilega einnig gys að andlegum aumingjaskap þeirra".
B. K.
Siöfræði Hallesby. Norski guðfræðingurinn dr. O. Hallesbv
hefir nýlega gefið út kristna siðfræði, sem mjög hefir verið deilt
um i því landi. Einkum eru það ummæli lians um styrjaldir,
sem valdið hafa andmælum. þykist liann að vísu vera hlyntur
alþjóðlegri friðarstefnu, en telur þó rétt að æfa her „til varnar".
Hann kallar andúð gegn hverskonar hernaði „sjúka einstak-
lingshvggju", en vill þó að kristnir menn varist þá föðurlands-
ást, sem sé of eigingjöm. Dansleikhús og spil, sem ýmsir eldri
siðfræðingar hal'a talið ti! „Adiafóra" (þ. e. það sem hvorki
cr gott né ilt og gerir þvi ekkert til i siðferðilegu tilliti) dæmir
Hallesby mjög stranglega. I-Iann segir að bókmentir og leikhús
hafi unnið kappsamlega að því, að spilla siðferðilegri heilsu
þjóðarinnar og leggur hvorttveggja, leiklistina og hókmentirn-
ar, til jafns við dans og spil, sein hanh segir að sé „tvær aðrar
viðhjóðslegar landplágur i Noregi". Ennfremur segir Halleshv,
að öll einingarviðleitni kirkjunnar á siðferðilegum og félagsleg-
um grundvelli sé skaðleg, því að hún rugli trúuðum og vantrú-
uðum saman í eina hjörð! Líklegast ímvndar hann sér að þetta
geti orðið til stórhaga á dómsdegi. Dr. Iiallesby er átrúnaðar-
goð þröiigsýninnar i Noregi.
Prestaköll. Um þingeyrarprestakall sóttu prestarnir Sigurð-
ur Z. Gíslason i Dalaþingum og Sigurður S. Haukdal í Flatey.
Kosning hefir nýlega farið fram og var sira Sig. Z. Gíslason
löglega kosinn með 175 atkv. — Um Norðfjarðarprestakall er
einn umsækjandi, sira Jakob Jónsson frá Djúpavogi. — Síra
Páll Stcphensen, Holti í Önundarfirði hefir sagt af sér prests-
skap frá næstu fardögum. Hann var fæddur 1862 og vígður
1886. — Umsóknarfrestur um prestakallið er útrunninn, og eru
umsækjendur tveir: Sira Óli Ketilsson í Ögurþingum og cand.
theol. Jóri Ólafsson. Um Borgarfjarðarprestakall á Mýruin sækja
þessir: Síra Björn Magnússon, Prestsbakka, sira Gunnar Árna-
son, Æsustöðum og cand. theol. Einar Magnússon.
þegar hlaðið er að fara i pressuna, fréttist lát sírq Einars
Friðgeirssonar á Borg. Verður hans minst nánara í næsta hlaði.
Prentsmiöjan Acta — PJ2ÍI.