Austurstræti - 23.06.1938, Blaðsíða 16
AUSTURSTRÆTI
AL T A F sér maður öðru
hvoru í blöðunum kvartan-
ir yfir því, hve hirðulaust fólk
sé í umgengni sinni um Aust-
urvöll, og er það síst að ástæðu-
lausu. Það er gremjulegt að sjá
hvernig fólk treður sundur gras-
svörðinn með fram gangstígun-
um og umhverfis styttuna. En
því í ósköpunum ráða ekki for-
ráðamenn bæjarins bót á þessu.
Ekkert virðist þó auðveldara.
Mig minnir að einhver hafi
stungið upp á því að raða fall-
egu hraungrýti með fram stíg-
unum. Það væri ágætt. Einhver
falleg girðing verður að að-
ski'lja. Hún þyrfti ekki að vera
nema öklahá. Og það er blátt
áfram óforsvaranlegt að girða
ekki umhverfis styttuna. Slíkar
girðingar gætu jafnvel orðið til
auga. En ég vil hafa sjóinn
með“.
Jón var vandaður sómamaður
um rnarga hluti, og því margt
vel um hann.
mikillar prýði. Og það er nú enn
jþá þannig með okkur íslendinga
og menningu okkar í stóru og
smáu að við þurfum greinileg-
ar girðingar til að geta haldið
okkur á vegum almennrar kurt-
eisi.
★
PAÐ ber flestum saman um
e að Tjörnin og umhverfi
hennar sé einn fegursti staður
bæjarins. Því undarlegra virðist
hve lítið er gert til að fullkomna
þessa bæjarprýði. Hugsum okk-
ur að hölmurinn væri stækkað-
ur svo sem 3—4 sinnuni og þar
reistur fallegur sumarveitinga-
skáli og svo falleg nýtízku brú
lögð út í hólmann frá eystri
bakkanum. Enginn vafi er á því
að þetta yrði einn vinsælasti
hvíldarstaður Reykvíkinga. Það
þarf ekki annað en benda á
Hressingarskálagarðinn, sem
þrátt fyrir það að hann er inni-
lokaður milli gamalla og ljótra
húsa, er uppáhald allra bæj-
arbúa. Það mundi því, auk
þess að vera bæjarprýði, geta
orðið arðvænlegt fyrirtæki hvort
sem bærinn eða einstaklingar
rækju það.
★
16