17. júní - 01.11.1922, Blaðsíða 3

17. júní - 01.11.1922, Blaðsíða 3
17. JUNÍ 3 sefcja hinar auöu hendur til vinuu. Og viröing þjóöarinnar útáviö krefst þess, aö fullkomið sjúkrahús komist sem fyrst upp í Reykjavik. Á einu riður mest. Yiðburöirnir 1. desember 1918 munu flestum vera í fersku minni ennþá. Hátíðahöld öll eru hjá liðin, þau voru einföld og óbrotin en þó minnisstæð öllum þeim er þau lifðu. Að þessa viðburöar var minnst svo einfalt og ó- brotið var aö kenna drepsótt þeirri hinni miklu er geysaði yíir álfuna um það skeið. Yjer skulum ekki dvelja við þessi svörtu ský, sem brá fyrir sólu, samtím- is með hinum iengi þráða viðbnrði, að land vort kom í tölu hinna fullvalda ríkja; þó er oss skylt að minuast þess, að lijer fjellu í valinn ungir og gamlir sem verið höfðu með í baráttunni fyrir fullveldisviðurkenningu þjóðar vorrar. Nú var aðeins að stíga yfir þröskuld- inn í hið »fyrirheitna land«, — en þá kom dauðinn og reif þá í burfcu frá oss og skildi eftir djúp sár og mikinn söknuð meðal ættingja og vina. Svo nærgætnislaus og ósanngjörn getur tilveran stundum verið. — — En hvað fcjáir að syrgja við gröf liins framliðna. Augu hans eru að eilifu lokuð og rödd hans kveður aldrei meir við í eyrum vorum. — Mikið og vandasamt starf liggur nú framundan fyrir þjóð vorri. Að vísu eru víða ruddir vegir fyiúr hana að fara, því sá Jón Sigurðsson fyrir og hann hlóð vörður meðfram þeim mörg- um sem standa enn þann dag í dag og eru oss óyggjandi leiðarvísir. En timarnir hafa breysfc og kröfurn- ar aðrar og fieiri en á lians fcímum. Eifct af því sem vjer Islendiugar verðum að gera oss ljóst nú, er það, hvað vjer viljum í stjórnmálum. Ujóðin verður að vita livað hún vill, en ekki að láta berast fyrir vindi, þvi þá fer fyrir henni eins og skipi sem í stórviðri hefir rifið seglin og brofcið sfcýrið, það verður að láta tilviljunina eina ráða því, hvað um það verður. Að þessu hefir ætið á seinui fcímum verið pottur brotinn á Islandi. Flokk- arnir skiftust að mestu um deilurnar við Dani, en þegar um annað var að tala, þá fór flokkaskipunin á ringul- reið. Verst er þó stefnuleysið í fjár- málum, botnleysi þings og sfcjórnar í þeim málum og bruðl til engra nýtra hluta. Oss dettur í því sambandi í hug Henrek von Bremen i „Den poli- fciske Kandestöber*, þá er hann er orð- inn borgarstjóri og yfir hann rigna mál til úrskurðar, liann blaðar í skjala- hrúgunni en skilur hvorki upp eða niður í neinu. Hann yfirgefur þá hið sökkvandi skip, en ísl. löggjafar skilja sig þannig frá honum — að þeir halda áfram botnleysinu. Vjer þekkjum vifcanlega hugtakið að spara, en kunnum ekki að nota það, eins og þegar á síðasfca þingi átti að fara spara, með því að skera niður alla barnakenslu til sveita, eða þá það að fella lögin um upphitun kirkna. Eða hverjar eru stefnur í atvinnu- og samgöngumálum ?

x

17. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.