17. júní - 01.11.1922, Blaðsíða 12
12
17. JUNI
síðustu 10—20 árin, svo sem vatnsveitu,
höfn, rafleiðslu o. fl. Hann brá upp
góðri mynd fyrir áheyrendum sínum
af Reykjavik, en tók það greinilega
fram, að vildu menn njóta fegurðar í
Reykjavik mættu menn ekki lita niður
fyrir sig, lieldur á ramman umhverfis
bæinn. — Rað var ekki laust við að
vjer kendum í brjóst um borgarstjóra,
að þurfa að viðurkenna þetta.
Frú Björg' Blöndal. »Tidens Kvinder»
flutti nýlega mynd af frú Björg Blön-
dal. Var þar getið starfsemi hennar
við orðabók Sigf. Blöndals og styrks
hennar af sjóði Hannesar Árnasonar,
og fer blaðið um hana mjög hlýlegum
orðum.
Islendingafjelag. Bað hefir altaf
öðruhverju verið fjelagsskapur meðal
Islendinga hjer í Höfn síðan 1876 eða
þar um. Hefir á ýmsum timum verið
reynt að koma slikum fjelagsskab á
fastar fætur, en hefur ekki tekist til
fullnustu. j?ó á það svo að heita um
þessar mundir, að fastur fjelagsskabur
sje meðal Islendinga hjer, og eru á-
kveðnir smáfundir einu sinni í mánuði
með dans og öðrum skemtunum, en
stærri og margbreyttari fundir á milli.
Lestrarfjelag. Dansk-íslenska fjelag-
ið ætlar eftir áramótin að opna lestr-
arstofu fyrir fjelaga sína í Holbergs-
gade 4, þar sem skrifstofa þess er íiú
Verður það opið nokkra tíma á dag
og eiga menn þar kost á að lesa ísl.
bækur, blöð og timarit. A þetta að
eins að vera tilraun, og er vonandi að
hún takist svo vel, að fjelagið sjái sjer
fært að halda áfram.
Fjalla-Eyvind Jóh. Sigurjónssonar er
verið að leika í Odense og láta blöðin
vel yfir meðferð leiksins.
Borvaldur Árnason, sem dvalið hefur
3 undanfarin ár við nám á ullariðnað-
arskóla í Englandi, lauk fullnaðarprófi
í sumar.
Porvaldur mun vera hinn fyrsti Is-
lendingur er lært hefur og lokið prófi
í þessum fræðum. Vonandi verður eitt-
hvað fyrir hann að gera á Islandi í
þessari grein, nú er hánn hefir eytt
miklum tima og fje í að fullnuma sig í
iðn þessari.
Norðurlanda samvinnan.
Sem áframhald af fundum þeim er
haldnir hafa verið siðustu árin um
verslunarpólitíska samvinnu milli Dan-
merkur, Noregs og Svíþjóðar, var hald-
inn fundur í Kristjaníu 13. og 14. okt.
þ. á. af fulltrúum nefndra ríkja, ásamt
fulltrúa frá Islandi, eins og á er minst
annarstaðar í blaðinn. Á fundinum
voru eftirgreind málefni rædd: Ná-
grannalands ákvæðið, tollívilnun milli
Norðurlanda, atvinnulöggjöf, skattur á
siglingum utanlands, varúðarreglur
gegn tvöföldum sköttum, gagnkvæm
skylda um að skatta ekki útflutning og
siglingar.
Veðursæld er hjer' um alla Dan-
mörku, hlýtt veður á hverjum degi og
frostlaust, með nokkurri þoku stundum
fyrst á inorgnana.