17. júní - 01.11.1922, Page 7

17. júní - 01.11.1922, Page 7
17. JUNI 7 fyrirlestrum sendir ýmsum verk- mannafjelögum og þau úthlutuðu aftur meðal vinnulausra fjelaga sinna. K. F. U. M. ljet halda ekki færri en 50 fyrirlestra. Uað iijelt líka opinni stofu, þar sem vinnulausir gátu komið og setið; gátu þeir fengið þar töíi og annað til dægrastyttingar. Ivaupmanna- liafnarbær veitti ekki lítinn styrk til þessa. Lestrarfjelag verkamanna hjelt 10 skemtanir fyrir vinnulausa og ljeði Dansk Solistforbund 45 listamenn alls við þær skemtanir og sóttu þær 10,000 manns Dað sjest af þessu, að hjer hefur ver- ið ýmislegt að hafa, bæði til skemtun- ar og fróðleiks fyrir vinnulausa verka- menn og höfum vjer þó aðeins drepið á það helsta. Hjer í landi eru menn ekki í nein- um efa um það, að þetta hafi haft mentandi og góð áhrif á verkamenn. Líka má geta þess, að lestrarsöfn bæjarins voru á þessum tíma yfirfull, geta menn setiö þar og lesið öll nýj- ustu blöð og bækur. Borgaraflokkur. Uað er komið nýtt fiokksnafn upp á liinum pólitíska himni. tað er svo nefndur »Borgaraflokkur«. Hann er þannig til orðinn, að hin- um svo nefndu Hægri- og Vinstri- mönnum, — eða livað þeir heita allir þessir flokkar íhaldsmanna — var far- ið að finnast nóg um vöxt og viðgang J afnaðarmanna, og sáu, að til þess að reyna að hefta það, var eina ráðið að þessir flokkar hefðu bandalag með sjer um stjórnartaumana. Annað eiga þeir ekki sameiginlegt þessir flokkar; sem sjá má líka á því, að þeir skammast hátt og í hljóði inn- birðis. Það hefir verið talað um slíkt banda- lag milli íhaldsmanna nú við kosning- arnar á Englaudi á móti Jafnaðar- mönnum. En bestan spegil af þessari samvinnu hefur maður þó hjer í Dan- mörku um þessar mundir. Og þeir fara ekki í neina launkofa með það, hver tilgangurinn sje,-— það er að verj- ast Jafnaðarmönnum svo lengi sem unt er. Stjórnarflokkurinn þorir ekki að rjúfa þingið og efla til nýrra kosn- inga, af ótta fyrir því, að þeir fái ekki meirihluta í Fólksþinginu aftur. Og hægrimenn þora ekki að demba van- trausti á stjórn Vinstrimanna, þótt þeir næstum sjeu neiddir til þess. Bessir flokkar verða að hanga saman, þó að samkomulagið sje ilt — alt af ótta við Jafnaðarmenn. Ueir vita — og viður- kenna það — að næst sjeu það Jafnað- armenn, sem við taumunum taki í Fólksþinginu. Holstein greifi — íhaldssinni — sagði í Fólksþinginu í sumar: Látum Jafn- aðarmenn koma til valda nú, þeir koma það hvort sem er, þess fyrr fáum við völdin aftur! — Hjer í Danmörku hefir hin svo nefnda »borgaralega« samvinna lieft Jafnaðarmenn — í bili. Ueir hafa aðeins, þessir flokkar, gefið sjálfum sjer hengingarfrest.

x

17. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.