17. júní - 01.11.1922, Side 8
8
17. JUNI
Gunnar Gunnarsson.
í>að er kominn ný bók á markaðinn
eftir Gunnar Gunnarsson. Dyret med
Glorien heitir hún. Og bókin hefir
fengið góðar viðtökur í blöðum hjer —
þeim sem vjer höfum sjeð.
Gunnar Gunnarsson liefir lagt Kaup-
mannahafnarbúa að fótum sjer með
bókum sínum. Peir
virða hann og dást
að skáldskap hans.
Hann er sá rithöf-
undur, sem einna
mest er lesinn í
Danmörku sem
stendur. 3?að er
næstum sama hvar
komið er, berist
talið að skáldskap
þá verður nafn
Gunnars fijótt á
vörum manna.
Yjer áttum ný-
lega tal við rit-
stjóra eins stór-
blaðs hjer í Höfn,
við töluðum um
Island, og sagðist hann hafa fengið
áhuga og samúð fyrir Islandi við lest-
ur á bókum Gunnars.
Gunnar Gunnarsson er mikill afkasta-
maður, hann skrifar eina eða tvær
stærri bækur á ári, og auk þess smá-
sögur í blöð og tímarit, þannig skrifar
hann að staðaldri í Martins »Maaneds-
magasin« og stundum í »Berlinske
Tidende«, sunnudagsútgáfuna.
Og bækur Gunnars koma í stórum
og mörgum upplögum. Pannig Saga
Borgarættarinnar, Yargur í vjeum og
Sælir eru einfaldir. Pá er líka eitt-
livað af bókum Gunnars þýddar á
ensku, þýsku og hollensku.
— feir mættu ekki lítilli mótspyrnu
og andúð á íslandi og af íslendingum
yfirleitt, þessir ungu menn sem hingað
sóttu niður eftir aldamótin og fóru að
skrifa sögur og kvæði á dönsku. Pað
stappaði nærri að
þetta væru talin
landráð. I>að var
líka um sama leyti
og stjórnmáladeil-
urnar stóðu sem
hæst milli Dana
og íslendinga, og
má vera að þær
hafi átt ainn þátt í
þessum kala. Mest
gekk þetta þó út
yfir þá Jóhann
Sigurjónsson og
Jónas Guðlaugs-
son, því þegar
þeir svo komu
Gunnar og Guðm.
Kamban, var farið
að bera minna á þessum kala, enda
þótt að eimi eftir af honum ennþá.
Og hvað gerðu svo þessir menn
af sjer?
Ekki annað en það, að þeir reyndu
að ryðja sjer braut til fjár og frama
erlendis, í stað þess að hafa annars
átt á liættu að dragast upp af hor.
Og þeir gerðu meira — þeir fluttu
með sjer ísland og sýndu það Norður-
landabúum, sem svo tóku að dáðst að
því. Og frægðin flaug síðar um Evrópu.