17. júní - 01.11.1922, Síða 11
i7. jim
11
í blö&um ofstækiafullra þjóöernissiuna
á Frakklandi og á siöustu (5 mánuðum
liaft áhrif á stjórnmálastefnu Itala í
ófriðnum milli Grikkja og Tyrkja og
yíirleitt Litlu-Asíu málin.
Hver áhrif þessi hreyfing hefur fyrir
Ttalíu eða hve langvinn hún verður,
er ekki vert að spá neinu um.
t t
Island og Islendingar erlendis.
Það er fyrir nokkrum árum siðan
(!). jau. 191(5) myndaður ísl söfnuður
hjer í Kaupmannahöfn. Prestur safn-
aðarinns er síra llaukur Gísla-
s o n, prestur við Holmens Kirke, og
guðsþjónustur safnaðarins haldnar í
»Abel Katrines Kirke< á Vesturbrú.
Byrjaði hann þennan söfnuð og einn
af aðal styrktarmönnum safnaðarins er
konsúll D. Thomsen og er i stjórn
hans. Söfnuður þessi er ekki stór,
hefir innan við hundrað meðlimi og
heldur guðsþjónustu að jafnaði einu
sinni í mánuði og svo helstu liátiðirn-
ar. Dálítill flokkur isl. kvenna syngur
við messurnar.
Stjórn safnaðarins liefir tekist að út-
vega sjerstakan grafi'eit fyrir Islend-
iuga i Bisbebjerg kirkjugarði, og verða
þeir Islendingar, er kynnu að deyja
hjer, og ekki hefðu óskað annars, jarð-
settir þar.
Það væri ekki alveg ósanngjarnt, að
söfnuður þessi fengi dálítinn fjárstyrk
af Islandi, einkum þar sem hann á í
vök að verjast fjárhagslega. Pað gæti
aldrei orðið Islandi neinn verulegur
útgjalda auki.
Gudm. Kamban. Bað er von á i
þessum mánuði nýrri bók eftir Guðm.
Kamban, að þessu sinni sögu. Bókin
kemur út hjá Pio, sem gefið hefir út
leikrit hans.
Kafla úr þessari sögu hefur Guðm.
Kamban lesið bæði hjer og á Islandi.
Kafli úr henni hefur líka komið í
»Berlinske Tidinde«.
Þórður Tómasson, prestur i Horsens,
sem ferðaðist á Islandi siðastl. sumar,
er að skrifa i »Nationaltidende« um
kirkjulíf á Islandi. og fylgir þessum
fyrsta kafla greinarinnar mynd af síra
Olafi Olafssyni fjrrv. Frikirkjupresti.
»Nordurlandamót“. Þau Norður-
landafjelög fimm, sem lijer eru í Kaup-
mannahöfn, hjeldu í fyrra, 1. desember,
sameiginlegan skemtifund, og hafði
hver þjóð fyrir sig einhvern til að
skemta og var Haraldur Sigurðsson af
hálfu Islendinga.
Bann 5. október þ. á. hjeldu fjelög
þessi aftur sameiginlega kveldskemtun,
og var þangað boðið sendiherrum hinna
fjögra Norðurlandarikja. Var margt
hjer til skemtunar, svo sem söngur og
hljóðfærasláttur. Af hálfu Islendinga
skemti Sigurður Birkis, söng hann þar
fjögur ísl. lög. Að skemtiskránni lok-
inni var sameiginlegt borðhald og tal-
aði H. J. Hólmjárn fyrir minni sendi-
herranna og þakkaði aftur sendiherra
Svía. Að lokum var dansað.
Fyrirlestur um Reyjavík. Borgar-
stjóri Tteykjavíkur, sem hjer var á ferð,
hjelt í októberm. fyrirlestur i Dansk-
íslenska fjelaginu um Reykjavík, og
sagði frá framförum bæjarinns og vexti