Sjómaðurinn - 01.01.1941, Page 21

Sjómaðurinn - 01.01.1941, Page 21
SJÓMAÐURINN 15 í þjónustu flotans 19 ára gamall. Það var árið 1825. Næstii níu árin var liann sjómaður. Hann vann erfiðisvinnu, en liafði mjög litinn bókakost og naut mjög litillar bóklegrar fræðslu. Hann lærði þríhvrningafræði á þann Iiátt, að teikna dæniin m,eð krit á fallbyssukúlur. Ilann lærði það af langn reynslu, að stormar og straumar gátu hrak- ið skip langt af leið, og að skipið gat tvöfaldað hraða sinn, ef straumur var með. — Ski-pstjórar lærðn þessi sannindi af erfiðri reynslu í þá daga, en þessi fróðleikur fannst ekki i siglingabókun- um. Maury ákvað nú að sjá öllum skipstjórum fyrir sjókortum, sem á væru merktir stormar og straumar allra hafa á öllum árstíðum. Hann var mjög trúhneigður maður og trúði því í einlægni, að guð, sem stjórnaði allieiminum, Iiefði skapað lögmál, sem alheimurinn léli stjórnast af. En hvernig átti að finna þessi lögmál? A hvaða árs- tíðum máttu sjómenn vænta þess, að stillur væru á Kyrrahafinu? Hversu mikilli stefnuskekkju mátti gera ráð fyrir vegna golfstraumsins? Þúsundum slíkra spurninga revndi ])essi óskólagengni sjó- maður að svara. Og hann reyndi að finna siglinga- leiðir, sem væru fljótfarnari en þær, sem áður höfðu verið farnar. Sjómennsku Maury’s var lokið, þegar hann var 33 ára gamall. Hann varð fvrir slysi i höfn og hraut hnéskelina og mjaðmarbeinið. Maurv færði sér vel í nyt dvölina í landi, og árið 1842 var liann gerður að aðstoðarmanni á hafrannsóknarstofu Bandaríkjanna í Washington, og i bókasafni stofn- unarinnar fann hann siglingabækur þúsunda skijja. Upp frá þeim degi gerði liann uppkast að kortum, sendi þau siglingafræðingum og skipstjór- um og óskaði eftir samvinnu við þá við rannsókn- ir sínar. Skömmu seinna voru þúsundir skipstjóra á öllum höfum lieimsins önnum kafnir við athug- anir, bæði á nóttu og degi. Sérhver siglingafræðingur skrifaði í siglinga- bók skipsins daglega lofthita og sjávarliita, vind- áttina, stefnu strauma og stöðu loftvogarinnar. Með vissu millihili vörpuð þeir fyrir i)orð flösku- pósti, þar sem skráð var lengdar og breiddargráða og dagsetning. Ennfremur áttu þeir að hirða allar slikar flöskur, sem kynnu að verða á vegi þeii-ra, og senda allar þessar skýrslur til Washington. Á átta árum safnaði Maury saman skýrslum, yfir 2,000,000 siglingadaga, og dró hið fræga „storma og straumakort“ sitt, siglingaleiðir um heims- höfin. Þetta kort hafði hiria inestu þýðingu fyrir við- skiptalífið. Áður hafði verið farið frá Baltimore lil Rio á 100 dögum, en eftir siglingakorti Maury’s var hægt að fara. þessa vegalengd á 75 dögum. Siglingam.etið frá New York til San Francisko hafði verið 180 dagar, en samkvæmt „storma og straumakortinu" var hægt að fara þcssa vega- lengd á 133 dögum. Hann ráðlagði hrezkum kaup- skipum, sem sigldu til Ástralíu, að fara umhverfis hnöttinn, fara fyrir svðsta odda Afriku í austur- leið og fyrir Suður-Ameríku í heimleiðinni. Þann- ig sparaði 1000 tonna skip 6,500 sterlingspund í kostnað. Árlega spöruðu ameriskir útgerðarmenn 2,000,000 sterlingspund með því að sigla eftir þessu korti og enskir útgerðarmcnn 10,000,000 sterlings- pund. Þegar viðskiptin fóru að aukast milli Ameriku og Evrópu, var um það rætt, að leggja sæsímalínu yfir Atlantshafið. En livar ótti að leggja hana ? í fimm, ár mældu skip Iiafdýpið undir leiðsögn Maury’s. Lóðið, sem notað var til að stika dýpið, var þannig útbúið, að þegar það var dregið upp, liékk við það botnleðja, svifdýr og svifplöntur, en þannig gal Maury rannsakað botninn. Þanig fór Maury að því, að kortleggja liafsbotninn milli Newfoundlands og írlands og eftir þessu korti var sæsíminn lagður. f kvöldveizlu, sem lialdin var i tilefni af því, að fyrsta skeytið var sent yfir At- lantshafið, sagði Cyrus W. Field, sem hafðii fram- kvæmdastjórn verksins á hendi: „Maury sagði fyrir um verkið, Englendingar lögðu peningana til, og ég framkvæmdi það.“ Það bar ofl við áður fyr, þegar aðeins ein sigl- ingaleið var til milli Evrópu og Ameriku, að skip, sem voi'u á vesturleið og skip, sem voru á austur- leið, rákust á, ef þoka var. Maury var beðinn að ráða bót á þessu. Þá hugkvæmdist hmuim, að i hibliunni væri talað um „vegi hafsins“. Fvrst drott- inn talaði um „vegi hafsins", þá hlutu þeir að vera til. Og ])á þurfti ekki að gera annað en að finna þá. Er hann hafði reiknað út storma og strauma og jakarek, birti hann árið 1855 sjókort, sem sýndi tvæi' siglingaleiðir yfir Atlantshaf, og voru milli ])eirra um 60 milur. Nyrðri leiðina átti að fara vestur um, en syðri leiðina austur um. „Látið öll skip fara þessar leiðir, og þá munu þau ekki rek- ast á, þótt þoka sé“, sagði hann. Elotinn notaði strax þessar siglingaleiðir, en það var ekki fvr en 1898, sem útgerðarfélög samþykktu að nota þær. Nú datt Maurv í lmg, að fyrst hægt væri að finna lögmál fyrir straumum sjávarins, þá ætti að vera liægt að finna einhver lögmál fyrir loftstraumun- um, stormi og regni. Nú á dögum bera menn óskor- Frh. á bls. i\. '

x

Sjómaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.