Sjómaðurinn - 01.08.1941, Síða 22

Sjómaðurinn - 01.08.1941, Síða 22
14 SJÓMAÐURINN föans Seedorff Pedersen: Fkimkoma Andresar stýrimanns. Andrés, stæltur stýrimaður, er stiginn á land, og frjáls og glaður eys hann fé á báða bóga, blikar á gull í pússi hans, gengur í „Höfrung“, hlýja krá, og hellir víni skálar á, romm frá Cuba, rautt og höfugt, rýkur í glasi stýrimanns. Og sé hann Andrés eitthvað kenndur um hann pálmaþytur stendur, blárra hafa bylgjuniður bergmálar í sálu hans. Maurildanna milda skin merlar dimmgræn innhöfin, glitrar sveimur fleygra fiska fyrir augum sæfarans, Andrés dáir dýrar veigar, djarflega hann mungát teygar, en við stýrið á hann heima, örugg handtök, stefnan rétt. Eitt sinn féll hann fyrir borð, en fast við glytti í hákarlssporð, og síðan fannst hann heill á húfi í hákarlsmaga — og tók því létt. Af hörundsflúri hans má kenna, að hann hefir notið blíðu kvenna. suður undir Ceylons pálmum og Siglufjarðar undir hlíð, og stundum fæddist sveinbarn svart með svalblá augu og hárið bjart. •— Já, minning hans í meyja hjörtum mörgum lifir ár og síð. Ég, sem ykkar elzti maður, sem einnig er talinn djarfhugaður, vil þið heilsið góðum gesti og gerum fögnuð kringum hann. Inn í „Höfrung“ hleypið þið, hér skal leggjast festar við. Glösin, sjómenn, hátt skal hefja, hyllum Andrés stýrimann. Ragnar Jóhannesson þýddi.

x

Sjómaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.