Sjómaðurinn - 01.08.1941, Blaðsíða 31

Sjómaðurinn - 01.08.1941, Blaðsíða 31
s JÓMAÐURINN 23 in nöfn landvættanna: Gammur, Dreki, Jötunn, Harðfari. En því næst hófust keppnirnar. Kappróðurinn. Keppt var i tveimur syeitum, af gufuskipum og vélbátum. Verðlaun voru ^Kiskimaður" Ásm. Sveinssonar, á eirplötu, sem Morgunblaðið gaf til verðlauna. Verðlaun í vél- bátaflokknum var June-Munktell-bikarinn, gef- inn af Gísla J. Jolinsen og keppt um liann nú í fyrsta sinn. Róin var 1000 metra vegalengd. Urslit urðu fyrir vélbáta: „Sæbjörg“ 5 min, 3 sek. „Liv“ 5:5.8 og „Vestri“ 5:6.2. — Gufuskip: )5Arinbjörn“ 4 mín. 54.8 sek. „Gyllir“ 4:56.8 og »Sigríður“ 4:59.8. Svo vildi til, að skipsmenn af „Karlsefni“ reru án keppinauta og urðu mistök á því að tíminn yrði tekinn. Mörgum J)ótti, að „Karls- efnis“-menn befðu róið svo vel, að þeir myndu liafa orðið framarlega og' var því ákveðið að veila þeim beiðursverðlaun, lárviðarsveig. L.v. „Sigríður“ var bandbafi skjaldarins frá því i fyrra. Reipdrátturinn fór fram að loknum hátíða- höldum á Iþrótlavellinum. Keppendur voru 8 nianna sveitir af „Jóni Ólafssyni“ og „Garðari" frá Hafnarfirði. Báðar sveitir drógu prýðisvel °g stóð fyrri dráturinn yfir í 21/2 mínútu, en sá seinni i tvær mínútur. Sigruðu Garðarsmenn 1 bæði skiptin, og þurfti því ekki að draga í þriðja sinn. Verðlaunin voru bikar, sem gefinn er af veiðarfæraverzlunum i Reykjavík. Hand- hafi var „Jón Ólafsson“. Stakkasundið. Synt var 100 m. leið og voru keppendur í öllum sjóklæðum. Keppt var um hikar, sem Sjómannafélag Reykjavíkur gaf. Handbafi var Vigfús Sigurjónsson. Úrslit urðu þau, að fyrstur varð Ingþór Guðmundsson frá Keflavik á 3 mín. 6.3 sek. Annar varð Erlingur Klemenzson á 3:21.6 og þriðji Markús Guð- biundsson á 3:32.2. Björgunarsundið. Keppt var um bikar, sem Útgerðarmannasambandið brezka gaf Útgerðar- uiannasambandi íslands til verðlauna í sjó- 'Uannaíþróltum. Synt var 25 metra út og aftur metra í land, eða samtals 50 metra. Fyrst- llr varð Markús Guðmundsson á 1 mín. 16 sek., a|uiar Loftur Júlíusson á 1:16.5 og þriðji Vig- Uis Sigurjónsson á 1:20.2. Vigfús var bandbafi hikarsins frá í fyrra, en þá sigraði lnmn bæði 1 stakkasundi og björgunarsundi. kessi dagur varð lil mikils sóma fyrir sjó- Uienn og fulltrúa þeirra i stjórn dagsins, þó að ýuisar umbætur megi vitanlega gera. Víða úti um land fóru fram mikil bátiðaböld og liafa þau alls slaðar tekizt mætavel. „Barningsmenn“ lieitir ný bók, sem kom á bókamarkaðinn á sjómannadaginn. Höfundur- inn er Guðmundur Gíslason Hagalín. Tileinkar bann bókina sjómannastéttinni og gaf liandrit- ið sjómönnum á Isafirði, en þeir selja bana til ágéiða fyrir sundlaugarsjóð Isfirðinga, en þeir bafa sérstaklega beitt sér fyrir því máli. Þessi bók fjallar, eins og nafnið bendir til, um sjó- menn og sjómennsku, og' eru í lienni nýjar og gamlar sögur og sögubrot, sem þessi vinsæli höfundur hefur skrifað. MÁL SJÓMANNASTÉTTARINNAR Á ALÞINGl Sjómannaskólinn. Frumvarp um byggingu sjómananskóla fluttu þeir Sigurjón Á. Ólafsson og Erlendur Þor- steinsson. Var mánuður liðinn af þingtíma, er frv. kom fram. Málið fór lil sjávarútvegsnefnd- ar E. d. og fékk þar greiða og góða afgreiðslu. Hafði skólastjóri Stýrimannaskólans verið kvaddur á fund bennar og eftir bans tillögum farið um ýmsar breytingar á frv. Auk þeirra, sem nefndin var ákveðin að gera á því. Nei'nd- aráliti skilaði bún 2. apríl. Málið kom til um- ræðu 7. s. m. Flutti frsm. nefndarinnar, Ingvar Pálmason, ítarlega ræðu um nauðsyn á bygg- ingu nýs skólaliúss. Málið var síðan tekið af dagskrá, samkvæmt beiðni alvinnuinálaráðberra. Leið svo fram lil 6. maí, að málið fékkst tekið á dagskrá á ný og voru þá samþ. allar breytingartillögur nefnd- arinnar með 9 og 10 atkvæðum sambljóða og frv. einnig. 3. umræða var 9. sama mán. og' fór málið þá til N. d. Sjávarútvegsnefnd þeirrar deildar skilaði nefndaráliti 13. maí og var nefndin sannnála um að mæla með frv. ó- breyttu. Frv. var síðan samþ. við 2. umr. í þeirri deild af meginhluta þingmanna. Málið var síð- an ekki tekið á dagskrá samkv. beiðni atvinnu- málaráðberra fyr en 10. júni, eí'tir að 6 þing- menn böfðu kral'ið málið á dagskrá. Var þá samþ. dagskrá lrá atvinnumálaráð- berra með 15 atkv. gegn 9, með þeim rökstuðn- ingi, að málið væri ekki nægilega undirbúið og skyldi ríkisstjórnin leggja frv. fyrir næsta þing um málið. Við afgreiðslu fjárlaganna lagði sami ráðberra til, að á árinu 1942 skyldu veittar 500 þús. kr. lil byggingu skólans. En tók þá tillögu aftur og

x

Sjómaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.