Sjómaðurinn - 01.08.1941, Blaðsíða 27
SJÓMAÐURINN
19
Flaggskip Columbusar, Santa-Maria. Nákvæm endur-
bygging eftir lýsingum.
dasklaustursins, sem löngu er komið í eyði, þar
se niliann dvaldist yfir helgi hjá kónginum og sagði
slíkar tröllasögur af landafundum sínum, að liirð-
snáparnir stungu hæversklega upp á því, að mann-
inum væri fylgt til dyra. 1 Palos sáum við höfnina,
sem, flotinn lagði af stað úr árið 1492.
Við dvöldum i viku í Sevilla, þar sem við skoð-
uðum bóka og skjalasöfn, tvo daga i hinni fall-
egu borg Cadiz, en þaðan lagði Cólumbus af slað
í aðra ferð sína, og við lögðum líka þaðan af stað
út á Atlantshafið. Og það var okkur ekki kiun-
voðalaust, að Cólumhus fór þessa ferð á skemmri
tíma en við! Árið 1492 brotnaði stýrið á Pinta,
skipi Cólumbusar, á leið til Kanaríeyja. Marie Otis
fór sömu leið og varð að fara til Casablanca til við-
gerðar, en Capitana fór til Madeira og var þar i
viku. Síðasta heimsókn okkar á Gamla landinu
var Gomeraeyja, sem er ein af Kanarieyjunum —
Capitana á höfninni í Funchal, Madeira, en þar kom
Columbus i fjórðu vesturför sinni.
en þaðan lagði Cólumbus af stað út á hið ókann-
aða haf. í 24 klukkutíma, eða þangað til við vor-
um komin 100 mílur út á haf, sáum við Teneriffe
í baksýn, en svo sáum við ekki land í 20 daga.
Frá Kanarieyjum, til Trinidad fórum við sömu
leið og Cólumbus í þriðju ferð sinni árið 1493. En
hve fagurt er á þessum suðlægu eyjum! Stjörn-
urnar tindra í allri sinni fegurð og alltaf koma ný
og ný stjörnumerki í ljós, sólroðin góðviðrisský og
stöku sinnum liressandi regnskúrir, torfum flug-
fiska spretta upp af hverri báru og ótal tilbrigði
sólarlagsins og uppkomu mánans. Og á þessu auða
hafi, sem vegna styrjaldarinnar sást hvergi segl á,
fremur en á dögum Cólumbusar, gat gripið mann
sama tilfinningin og sjómenn Cólumbusar, sem
trúðu á orð foringja síns, að auður og metorð biðu
þeirra fjarst úli við sjónhringinn.
I>an 12. nóvember sáum við þrjár liæðir Trini-
dads, nákvæmlega eins og Cólumbus lýsti þeim.
Yið Margaritaeyjuna fór Capitana út af leið Kól-
umhusar og fór þvert yfir Darienflóa til Panama-
strandar. Þar kom fánaskip Cólumbusar víð i
fjórðu ferð hans, er hann var að leita að sundi,
sem hvergi var til. Þar fundum við fjölda kóral-
evja, skjólgóðar hafnir, hitabeltisskaga með
blómguðum trjám, himingnæfandi fjöll og San
Blas-Indiána, hina einu innfæddu menn, sem látn-
jr hafa verið óáreittir frá j)ví Cólumbus fann j)á.
Það voru þeir, sem fylgdu Balhoa vfir eyðið, gegn-
um fenskóga, sem, enginn hvítur maður þorir að
nálgast nú.
Við fengum ágætt veður i lokaferðinni frá Costa
Bica til Jamaica. Þar fundum við staðinn, þar sem
Cólumbus lauk fjórðu og merkustu ferð sinni og
skip hans, Capitana, fékk að fúna niður.
' r-v^'-vr’ C7"'— ■____________
Indíánastúlka frá San Blas um horð í Capitana.