Sjómaðurinn - 01.08.1941, Síða 23

Sjómaðurinn - 01.08.1941, Síða 23
S JÓMAÐURINN 15 Um Flöskufélagið ■ ,The Bottle Clubs l»il$inii€lir maiiiia iiin licim allan eru mi ■ þe§§iim liciinsfræsra félag:§§kap. T T M Vll)A veröld, í mörg- um löndum og ótelj- andi eyjum, frá Grænlandi til Suðurskautsins, og frá Tasmaníu til Alaska, finnast meolimir lnns serstæða fe- lagsskapar, sem kallar sig „Alþjóðlega flöskufélagið“ Til þess að koma í veg fyr- ir allan misskilning, ætla ég að taka það strax fram, að þetta félag á ekkert skylt við þessi venjulegu „drykkju- félög“. Meðlimir þessa fé- lags eru áhugamenn um haf- rannsóknir og landafræði. Þessir menn eru af öllum kynþáttum og þjóðcrnum, af báðum kynjum, öllum stéttum og á ýmsum aldri, frá átján ára aldri fram að níræðu. Þetla fólk hefir oft m.ilda ánægju af þessu frístunda starfi sínu, sem verkar miklu meira á ímyndun- araflið en t. d. frímerkjasöfmm. Og þetta starf er í þvi falið, að skrifa einhver skilahoð á miða, láta miðann í innsiglaða flösku og fleygja flösk- unni í fljót eða sjóinn, þar sem hún berst undan vindi og öldum, hafstraumum og sjávarföllum. Flöskufélagið var stofnað á sjó árið 1926, en stofnandi þess var Ástralíumaðurinn Edward P. Bailey, liðsforingi úr heimsstyrjöldinni. Höfundur þessarar greinar liafði samstarf við Bailey liðsfor- ingja á fyrsta stóra fundinum, sem flöskufélagið hélt. Ég hafði kynnzt Bailey liðsforingja í Ástraliu, nokkrum árum áður, og árið 1926 urðurn við samskipa frá Vancouver i British Columbia til Sidney í Ástraliu. Sér til skemmtunar á hinni löngu sjóferð datl Bailey í hug að rannsaka straumana með því að fleygja út flöskum. og i því skyni safnaði hann daglega tómum flöskum úr húri skipsins. í hverja flösku voru látin skila- l>oð á ýtmsum tuqgumálum., og jafnframt var finnandinn beðinn að gera liðsforingjanum að- vart. Siðan var flöskunum lokað tryggilega og þeim fleygt fyrir borð. Tveim árum seinna, á leið frá Ástralíu til Kanada, fleygðum við fleiri flösk- um í Kyrrahafið. Brátt, eftir að við Bailey komum lil heimila okkar í Kaliforníu, bárust fréttir víðsvegar að úr heiminum. Ein flaskan hafði fundizt í Chiel, önn- ur í Alaska, ein var send frá Kamchatka í Rúss- lándi, ein frá Papna, tvær frá Jaiian, ein frá Sol- omoneyjum og þrjár frá Mexico. Ein flaskan hafði þó farið lengsta vegalengd. Hún hafði verið látin í sjóinn um fjögur hundruð mílur vestur af Hono- lulu. Ilana hafði rekið inn i Indlandshaf, og þrem árum seinna fannst hún á strönd Austur-Afríku. Þannig var flöskufélagið stofnað. Auk stofn- andans, Bailey liðsforingja, voru í félaginu menn, sem liöfðu fundið flöslcur, en þeir átlu heima i Norður- og Suður-Ameriku, Asíu, Ástraliu, Aust- ur-Afriku og eyjum í Kyrrahafinu. En með árunum varð þessi félagsskapur fjöl- mennari og átli meðlimi úti um allan heim. Eng- in uppfinning virðist liafa öðlazt skjótari út- breiðslu, né verið tekið hetur af almenningi, held- ur en sú aðferð, að láta Ægi gamla flytja póst. Meðlimirnir eru nú margar þúsundir. Og þegar búið var að fleygja flöskupósti víðsvegar um heimsliöfin, var farið að setja flöskupóst í ár og vötn. Flöskufélagið á nú meðlimi úti um allar jarð- ir. Þeir iáta bréf í flöskur, senda þær með far- þegum iit á rúmsjó og þar er þeim fleygt í sjó- inn á tilsettum slóðum. Menn, sem búa fjarri sjó, fleygja flöskunum i ár eða vötn i þeirri von, að ef til vill komizt þær einhverntíma út á haf. Flöskufélagið borgar nú ofurlítil laun tií þeirra, sem finna flöskur og við það bætast ofurlítil verð- laun, ef flaskan liefir legið lengi í sjó eða farið mikla vegalengd. Þar af leiðirí að menn tilkynna nú fremur flöskufundi en áður fyr. Það er þvi óhætt að gera ráð fyrir þvi, að ef ekki hefir verið tilkynnt um fund flöskunnar nokkrum árum eft- ir að henni hefir verið fleygt í sjóinn, þá hefir luin annaðhvort brotnað i hafi eða liana hefir rek- ið á land fjarri öllum mannahústöðum. Ef atlmgað er flöskuskeytasafn Baileys liðsfor-

x

Sjómaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.