Sjómaðurinn - 01.08.1941, Page 24

Sjómaðurinn - 01.08.1941, Page 24
16 S JÓMAÐURINN ingja, þá sést, að flöskurnar liafa farið ferðalög um höfin, sem sérhver hafrannsóknamaður mætti öfundast yfir. Til dæmis má gela þess, að flaska, sem Japani nokkur setti í sjóinn nálægt Okhotsk, fór alla leið til syðsta odda Suður-Ameríku á þrem árum. Flöskuskeyti frá Chile hafa fundizt í Al- aska og Japan, og flöskur frá Alaska hefir rekið á land í Asíu, Ástraliu, Afriku og á ýmsum eyj- um í Kyrrahafi og Indlandshafi. Flöskuskeyti, sem maður frá Nýja Sjálandi flcygði af skipi nálægt Honolulu, fór yfir Kyrra- hafið og Indlandshaf, fór fyrir Góðrarvonarhöfða og rak á land á Mossemedes á Angola á Vestur- strönd Afriku. Þessi flaska var sjö ár og tuttugu og níu daga á leiðinni. Þá var hún orðin svo klístr- uð sjávargróðri og skeldýrum, að liún hefði ekki getað flotið öllu lengur. Þetla hefir fært mönn- um heim sanninn um ]>að, að sævargróður og sjávardýr hafi sökkt flöskum, sem ekki spyrst til. Það er Ijóst, af rannsóknum flöskufélagsins, að sævargróður er fjölbreyttari og þróast örar i lieitum höfum, en köldum. Sumstaðar er vafa- mál, að flaska geti haldist á floti lengur en eitl ár, en annarsstaðar gæti hún haldist á floti um alla eilífð. Ennþá hefir engin flaska sem fundizt hef- ir, verið lengur í sjó, en flaskan, sem fannst á Mossemcdes. Þegar henni var fleygl í sjóinn, horg- aði Flöskufélagið engin verðlaun lil finnenda. En þegar Englendingurinn W. S. Stephen fann flösk- una á strönd Angola árið 1939, var honum strax Ijóst, hvílika þýðingu þessi fundur hans hafði, og hann opnaði flöskuna strax og las skeytið. Ilann sendi Bailey iðslforingja skeyli um fund sinn og skömmu senna fékk Stephan ávísun á fimm Ster- lingspund, en það voru verðlaun fyrir að hafa fundið flösku, sem hafði farið meira en hálfa leið umhverfis jörðina. En flaskan sjálf, ásamt ljós- mjmd af skeytnu, var send meðlim Flöskufélags- ins í Nýja Sjálandi, sem hafði fleygt flöskunni i sjóinn. Oft fara flöskur, sem. fleygt er i ár og vötn langt inni í landi, hinar furðulegustu leiðir. Menn skyldu ætla, að þessar flöskur færu ekki langar leiðir, en flaska, sem fleygt var í Mackinacsundið, sem tengir saman tvö af stórvötnum Ameriku, Michiganvatn og IJuronvaln, komst alla leið út í Atlantzliaf og fannst á strönd Skotlands niutiu og sjö dögum seinna! Önnur flaska, sem fleygt var út á sama stað, fannst hundrað og fimm dög- um seinna i Cienfnegos á Cuba. IJvernig gat hún komizt þangað? Það er ekki hægt að hugsa sér annað, en hún hafi farið eftir endilöngu Michig- anvatni, flotið niður skipaskurðinn, sem liggur frá Michiganvatni til Illinois og Missisippi út í Mexicoflóa, og að lokum að ströndum Cuha. Árið 1938 fleygði einn af meðlimum Flöskufé lagsins, Frank S. Wilton í Los Angeles, mörgum flöskum með skeytum i Missouri-fljótið við Fort Benton í Montana. Ein af þessum flöskum fór alla Ieið til Kansas City, önnur lil Memphis í Tenn- essee, og sú ])riðja til New Orleans. Flaskan, sem rak á land við New Orleans fór 3.700 milur niður Missouri og Missisippi á tuttugu og álla dögum. Einu ári og fjórtán dögum seinna fékk Wilton eitt flöskuskeytið aftur alla leið frá Englandi. Það sem vekur meðlimum þessa félagsskapar mesta eftirvæntingu, er það, að þeir geta aldrei vitað, hvar flöskumar, sem þeir fleygja í sjóinn, rekur á land. Eftir nákvæma rannsókn geta félagar Flöskufé- lagsins ])ó farið nærri um það nú orðið, hvar flösku rekur á land, sem fleygt er i sjóinn á til- teknum stað. Þannig fleygja Bretar út flöskum, og skrifa Ameríku sem áfangastað í skeytin, í Atlantzhafið fyrir sunnan Gihraltarsund. Á sama hátt fleygja Amerikumenn flöskum í Golfstraum- inn sunnan við Hatterashöfða og geta verið þess nærri fidlvissir, að ein af hverjum þremur kem- ur til Englands. Ilraðametið á þessari leið er átján dagar, frá Miami í Florida til Lochinver á Skot- landi. Á þeim tiltölulega skamma tíma, sem Flösku- félagið hefir starfað, hafa meðlimir þess komizt að því, hverl vatnið úr fljótunum fer, þegar það er komið í sjóinn. Til dæmis flaska, sem sett var í ána Dorenna í frönsku Mið-Afríku, harzt á land nálægt Corpus Chrisli í Texas hálfum áttunda mánuði seinna. Önnur flaska, sem sett var í Braz- osfljót í Tcxas árið 1939, fannst i Milfórd í Eng- landi fimm mánuðum og nítján dögum seinna. Þannig kynnast menn hafstraumunum. Margar villur hafa verið leiðréttar með flöskuskeytum. Auk þess er þetta hin hezta skemmtun fyrir þá, sem áhuga hafa á hafrannsóknum. SJÓMENN! Getið S j ó m a n n s i n s við kunningja i/lck- ar, hvert sem þið farið og hvar sem þið komið, — og verzlið við þá, sem auglýsa í Sjómann- inum.

x

Sjómaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.