Útvarpstíðindi - 30.01.1939, Qupperneq 8

Útvarpstíðindi - 30.01.1939, Qupperneq 8
ÚTVARPSTÍÐINDI Hér er því verið að endurreisa at- vinnugrein, sem legið hefur niðri í nærfellt 100 ár. Árið 1563, 15. ágúst, keypti danska stjórnin brennisteinsnámurnar í Ping- eyjarsýslu. Ilafa þær síðan verið í eign konun'gs og síðar íslenzka ríkis- ins. Ekki vita menn nú, hve mikill ár’J. útflutningur hefur verið yfirleitt. Aðeins er kunnugt um magn útflutn- ings á árunum 1839—41 og var hann þá að meðaltali um 150 tonn á ári. Um verðmæti vita menn ekki held- ur, en til er frásögn um það, að á einni sendingu hafi konungur grætt um 6000 da.li. Brennisteinsverksmiðjan, sem nú er verið að reisa við Bjarnarflag í Mý- vatnssveit. Húsið er byggt úr timbri. Pað er um 30 metrar að lengd og mesta breidd 10 metrar. 1 brennisteinsjörð- inni, sem tekin er í námunum eru 15—20% af óhreinindum, en verk- smiðjan skilar alveg hreinum brenni- steini (100%). Verksmiðjan á að vinna 5—600 tonn á ári af hreinum brennisteini, sem verður fluttur á bíl- um um 100 km. leið til Húsavíkur og þaðan sendur til Englands. Þakka fyrir bréfin. Alit frá útkomu fyrstu tölublaða af Útvarpstíðindum, hefur ritinu bor- ist fjöldi bréfa. Ég þakka kærlega fyrir öll þessi bréf. 1 þeim hafa ver- ið margar ágætar athugasemdir, bæði um Útvarpstíðindi og um útvarpið og dagskrá þess. — Vegna ýmsra orsaka hefir ekki verið hægt að birta nema tiltölulega lítið úr þessum brófum, enda þótt ýmsar þær skoðanir,, sem þar koma fram, eigi fullan rétt á sér. Stundum hafa þrengsli í blaðinu hamlað, en oft kemur líka sama skoð- un fram í mörgum bréfum og er hún þá jafnan birt aðeins einu sinni. Ritstjón, 240

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.