Útvarpstíðindi - 30.01.1939, Qupperneq 9

Útvarpstíðindi - 30.01.1939, Qupperneq 9
ÚTVARPSTÍÐINDI Hvað er í fréttum? Efiir Sigurð Einarsson, dósent Ég hefi tekið eftir því í nokkur undanfarin ár, að þegar menn spyrja mig þessarar dauðmeinlausu spurn- ingar, þá verður mér alltaf svarafátt. Ég svara eitthvað á þá leið: — Ja, — við höfum ekki hlustað síðan kl. 4 eða 5 eða 6. Ég átta mig ekki einatt á því í svipinn* að menn séu að spyrja mig um eitthvað, ,sem þegar er komið í útvarpinu. Margra ára starfsemi við fréttasöfnun og fréttaritun, gerir það að verkum, að maður venst alveg ó- sjálfrátt á að hugsa: Hvað verður næst. Og þetta: hvað verður næst er svo þungvæg og áleitin spurning, að ef til vill er enginn maður eins ástríðulaus og ósnortinn af fréttum, eins og sá sem starfar að þeim ár eftii ár. Hann hefur eiginlega hvorki tóm til að ergja sig né gleðjast. Hann má þakka sínum sæla, ef hann hefur við ,að fylgjast með og skilja. Hann verð- ur nýjungavél, og dagarnir verða honum misgóðir eftir því hvað mikiö og merkilegt ber við, og þó ekki merkilegt nema í mjög takmarkaðri merkingu. »Merkileg« frétt er sú, sem tekur til margra manna, sem orkar á líf og afkomu þjóðanna, gefur bend- ingu um framtíð þeirra, eða kemur mjög hastarlega á óvart. Hitt er svo mál útaf fyrir sig hvort mönnum þykja tíöindin góð eða ill. Vesalings fréttamaðurinn má eiginlega enga skoðun hafa á því, ekki sízt ef hann stai’far nú hjá hlutlausu ríkisútvarpi, og auk þess finnur enginn betur til þess en fréttamaðurinn, hvað það er blávitatilgangslaust að vera með nein- ar skoðanir á því, í sjálfu starfinu. Ef að hægt væri að þoka atburða- rásinni til! Þá væri nú annað mál. En atburðarásin tekur ekki minnsta tillit til fréttamannsins, og slær þao allt í mola fyrir honum á morgum, sem hann kunni að freistast til að hvika til í dag í samræmi við óskir sínar. Hann á aðeins um einn, og aðeins einn kost að velja: Að vita sem sannast að gögn hans leyfa og segja sem réttast frá samkvæmt þeim. Þetta, eru nú aðeins hugleiðingar um starf fréttamannsins, en ég set þær hér, af því ég býst við að ýmsir hlustendur vilji gjarnan vita út frá hvaða sjónarmiðum við vinnum starf okkar hér á fréttastofunni. Stundum erum við misskilin eins og kemur fyr- ir alla dauðlega menn, og stundum er okkur jafnvel ætlað verra en við eig- um skilið. En það er svo algengt fyr- irbrigði í okkar tiltölulega ófullkomnu veröld, að við sem öðrum fremur höf- um það verk á héndi að fylgjast með því sem þar gerist, tökum sjaldnast eftir því, þegar það beinist að okkar eigin þýðingarlausu persónu. — Það er ákaflega gcður skóli, í auðmýkt að vera tíðindamaður árum saman. Hvað er það sem fólk vill heyra? Ég á í fórum mínum ákaflega merki- legt safn bréfa sem ég hef fengið und- anfarin átta ár og eru góð bending um það. Ennfremur þær breytingár, sem virðast haí'a orðið á kiöfum Is- lendinga til frétla og viðhorfi til þeirra síðan Ríkisútvarpið tók til starfa. En frá því skal ég skýra nán- ar í síðari grein. Sig. Einarsson. 241

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.