Útvarpstíðindi - 22.10.1939, Blaðsíða 3

Útvarpstíðindi - 22.10.1939, Blaðsíða 3
Núverandi aðalpulur ríkisútvarpsíns Nú í sumar hafa útvarpshlustend- ur mjög' oft spurt hver annan eitthvað á þessa leið: Hver er hún þessi nýja, dama í útvarpinu? Og ekki hefur allt af orðið greitt um svör, svo nú virð- ist kominn tími til að kynna ungfrúna. fyrir hlustendum nú efti.r að við höfum hlýtt á hana sumarlangt. Og hver er svo daman? Hún heitir Guðbjörg Yigfúsdóttir og er fædd og uppalin á Sandi á Snæfellsnesi. Nám hefur hún stundað í Verzlunarskótan- um hér í Reykjavík undanfarna vet- ur, og lauk hún prófi þaðan síðast- liðið vor. Fyrstu kynni útvarpshlustenda af henni eru þa,u, að hún las kvæði á út- varpskvöldi Verzlunarskólans í apríl s,. 1. — Varð það tij þess að vekja at- hygli ýmsra á rödd hennar og fram- burði, sem þóttu fara, óvenju vel í út- varpi. M. a. hafði dagblaðið Vísir þau orð um þennan upplestur, að þar hefði birzt óvenju fögiur rödd og rík að blæbrigðum — og lét fylgja með, að gaman væri, að fá að heyra þá rödd í útvarpi oftar. Þetta a.tvik mun m. a. hafa valdið því, að hún hefur nú starfað sem þul- ur um nokkra hríð. Eg sé ungfrúna í fyrsta sinn niðri í útvarpi í gær. Allra náðarsamleg- ast hef ég fengið teyfi til að 1 íta inn til hennar í sjálfan helgidómipn, þul- arherbergið, meðan verið er að leika danslög af hljómplötum, því þá er þar minna um að vera en endra nær. Ég virði hana auðvitað fyrir mér með mikilli athygli, — og tel ég mér skylt að gefa, lesendum Otvarpstíð- inda ofurlitla hugmynd um útlit henn- ar, því ég geri ráð fyrir að fleiri séu forvitnir um þaö en ég. Hún er ljós yfirlitum, hári,ð gul- gjart og hrokkið, fremur há og grönn - alveg norræn útlits. Þessu næst, verður mér fyrir að svipast um í herberginu, sem er lít- ið og látlaust, en hlýlegt. - Hvernig kunnið þér nú við yð- ur hér í þessu, hreiðri ykkar þulanna. Prýðijega, þakka yður fyrir, þetta er sæmilega viðfelldin vistar- vera eins og þér sjáið. Það mætti þó telja, galla á herberginu, að á því eru engir venjulegir gluggar, sem snúa út, að ljósi dagsins. Þessi, þarna er ætl- aður til þess, að hægt, sé að sjá gegn um hann inn í útvarpssalinn, en um hinn ,sé ég inn í herbergið, þar sem fluttir eru fyrirlestrar, Lesnar veður- fregnir o. fl. þ. h. — Hvernig fellur yður svo vi.ö starfið? - Starfið fellur mér i sjálfu sér vel. Erfiðið ekki svo mjög tilfinnan- legt, en, hinsvegar talsvert ríkt að til- breytni. — 1 hverju er tilbreytnin helzt fólgin? Einkum í tónlistinni og ýmsu í sambandi við hana. öll hin lifandi hljómlist, sem hér er flutt, er mun skemmtilegri, fyrir mig en útvarps- hlustendur yfirleitt, því í gegnum þennan glugga fæ ég að sjá alla, sem flytja tónlist í útvarpið, og þetta er oft skemmtilegt, þegar vel er leikið, og’ ekki spillir ánægjunni, ef músik- antarnir eru laglegir menn, sem stundum kemur fyrir. Aftur á móti verð ég að fara varlega í að horfa 3

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.