Útvarpstíðindi - 22.10.1939, Blaðsíða 4

Útvarpstíðindi - 22.10.1939, Blaðsíða 4
ÚTVARPSTÍÐINDÍ mikið inn um hinn gluggann, þar sem fyrirlestrarnir eru fluttir, því það gæti e. t. v. valdiþ truflunum. — Þér eruð auðvitað ekki »nervcs<. lengur? — Nei, það er allt. búió að vera, eða það skulum við segja a. m. k. Það dugar ekki að láta slíkt á sér festa til lengdar. Ég geri mi,tt bezta, verð fegin vinsamlegum bendingum um starf mitt, tek öðru með ró ...... og læt það verða sem vill. — Hvað hafið þér svo fleira til að segja mér? — Eins og þér heyrið, hef ég í rauni,nni ekkert að segja, sem ekki er heldur von. Mér finnst, varla, að þér getið ætlast til þess af mér, a, m. k. s,egi ég ekki fleira., ef þér ætlið að halda áfram að skrifa það niður jafn- óðum. Ég tek athugasemdina til greina og legg niður vopn (þ. e. a. s. skriffær- in) og úr því fara samræðurnar að ganga, betur. Við tölurn saman um alla heima og geyma, því starf ung- frúarinnar er nú ekki annað en skipta um plötu við og við. —-----En allt í einu gefur hún merki, um, að nú sé rétt að tala varlega. Hún bendir á hina sex feta háu eikarklukku, sem daglega slær fyrir alla þjóðina. Við sjáum, að dagskrárlok eru í aðsigi. Daman sezt í stól sinn við þularborð- ið, sem er yfirdekkt grænu flaueli. Ég sé hana, færa tij einhvern. takka á borðinu. Mér virðist. hún allt í einu verða eitthvað annarleg á svipinn. Hún ber höfuðið hátt og virðist horfa langt út í einhvern endalausan fjarska. Hvarflar nú e. t. v. hugur hennar eitthvað iangt í burtu, kann- ske norður á Hornstrandir eða austur „EY5AN GRÆNA" Erindi Knúts Árngríms- sonar um Irland 1. nóv. »Eyjan græna« er þýðing á írska nafninu »Erin«, en þannig hafa, írar löngum nefnt land sitt. Síðastliðið sumar ferðaðist Knútur Arngrímsson ásamt konu sinni um Irland. Ferðuðust þau hjónin, á reiö- hjólum. Munu þau hafa kosið það far- artæki m. a. til þess að hafa aðstöðu til að komast í fljót og náin kynni, við land og þjóð. Þau fóru fyrst frá Dublin þvert yfir landið norðan til og svo suður með vestur- ströndinni og þá aftur austur um landið til Dublin. Á leiðipni skoðuðu þau ýms af þeirn héruðum Irlands, sem einkennilegust þykja. Þau komu m. a,. til vestui-héraðanna, þar sem fólkið talar nær eingöngu gaeliska, tungu — en svo nefnist gamla keltn- eska málið á írlandi. Hjónin gerðu sér einkum far um að kynnast lífi og atvinnuháttum al- mennings. I þessum héruðum er mikið aí rústum fornra bygginga,, kastala, kirkna, og klaustra, sem brotnar hafa verið niður á ýmsum tímum, þegar á Langanes. Nei, sennilega norður á Snæfellsnes. Og svo heyri ég hana kveðja hina íslenzku þjóð, þessa lát- lausu ungu stúlku, sem nú lætur meira til sín heyra, en nokkur annar kvenkostur á íslandi — og kveðjuna þekkjum við öll: »Otvarp Reykjavík. Nú er dagskránni lokið í kvöld. Góða nóttx. 4

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.