Útvarpstíðindi - 01.04.1940, Side 2

Útvarpstíðindi - 01.04.1940, Side 2
.UTVARPSTIÐINDI koma út vikulega ati vetrinum, 28 tölubl. 6 blatisiCur hvert. Árgrangurinn kostar kr. 6.50 til á.skrifenda og greiöi^t fyrir- fram. I lausasolu kostar heítiö 25 aura. Ritstjóri og áhyrgtSarmatSur: ICRISTJÁN FRIÐRIKSSON Bergstaöastr. 48 — Sími 5046 titgefaiulf i Il/f. IIliiHtnndiiin ísafoldarprentsmiðja h/f. Koppasaga. í sambandi við Hjaltalínskvöld útvarps- ins rifjuðust upp ýmsai' gamansögur. Hér kemur ein þeirra: Skólapiltar á Möðruvöil- um vildu eitt sinn glettast við einn kenn- arann. Pundu þeir upp á því, að safna sam- an öllum næturgögnum úr svefnskálum sín- um. Og röðuðu þeir þeim á loftskör og nið- ur öll stigaþrep á þeirri leið, sem þeir vissu, að kennarinn hlaut að ganga, er hann færi niður frá svefnhúsi sínu 'um morguninn. Þetta var i skammdeginu, og er kennarinn fór um stigann snemma um morguninn, varð hann koppanna ekki var fyrr en um seinan: Það varð mikil koppaskriða niður allan stigan og brotnuðu margir þeirra, því þetta var á lQÍrkoppa-árunum. Kennaranum þótti gamanið grátt ,sem vonlegt var, og kærði fyrir skólastjóra, Jóni Hjaltalín. Hann minntist þó aldrei á þetta einu orði. — En ekkert næturgagn sást í svefnskálum piltanna, það sem eftir var vetrar. Það var hegning skólastjóra — og þótti ýmsum hörð. A skinnsokka-öldinni kom sveitamaður í búð í Reykjavík og spurði, hvort hér væi'U til vélstíg. Búðar- mennirnir fóru að hlæja og sögðust ekkert slíkt hafa. ,,Ég var að biðja um stélvíg", sagði þá karlinn. Búðarmennirnir þóttust ekkert skilja og áttu bágt með að halda niðri í sér hlátrinum. Þá varð karlinn æfur og hrópaði: „Ég ætlaði að segja vígstél, ef þið skiljið það“. Hjónin höfSu rifizt all snarplega. Að lok- um sagði maðurinn um leið og hann gekk út: „Ég held ég gangi mig nú heldur fram af bryggjunni en lifa við þetta lengur“. Prúin kallaði á eftir honum: „Þú skalt nú bara eiga mig á fæti, Ólafur, ef þú gerir það í þessum fötum. A strí’ðstímum. Frúin við vinnustúlku, sem býður sig í vist: — Ég get ekki séð neitt um það af þessum meðmælum öllum, hvort þér notið sykur í kaffið. — Þjóðverjar eru farnir að búa til gerfikol. En sá er aðeins gallinn á, að það kvað ekki vera hægt að brenna þeim. — Því meiri sparnaður. Ósigurinn. Hann lofaði fögru, sem enginn gat ent, er atkvæði var hann að sníkja — en slympinn er Þjóðviljinn, slysið er hent, hann slapp ekki á þing til að svíkja. En láðu ei forlög, sem fella hvern mann — hann fékkst við sinn andstæðing rama, sem bæði var lagnari og lýgnari en hann og lofaði alveg því sama. St. G. St. 366 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.