Útvarpstíðindi - 01.04.1940, Síða 4

Útvarpstíðindi - 01.04.1940, Síða 4
yíirleitt brezkir, en jafnskjótt og- Malajarnir sjálfir eru þess umkomn- ir að menntun og hæfni, er fram- kvæmdastjórnin fengin þeim í hend- ur. — Sigfús var aðstoðar-skógsýslumað- ur og síðasta árið verksmiðjustjóri á togleðursekrum Austurindíufélags ins danska. En á fyrstu árunum eft- ir stríðið féll togleður (kátsjúk) í verði niður úr öllu valdi. Þessi mark- aðstöp urðu þess valdandi, að Sig- fús Halldórs, ásamt þúsundum yngstu skógsýslumannanna, sneri aftur heim til Evrópu. Nú var Suez- skurðurinn opinn, svo að hann gat farið styttri leiðina, og þar með lok- ið hringnum umhverfis jörðina. Sig- fús Halldórs dvaldi nú í eitt ár í K.- höfn og vann í nokkra mánuði á skrifstofu konungsritara. Þá bjóst hann, ásamt nokkrum dönskum fé- lögum sínum frá Malaga, í ferð til Mexíkó. Þá ferð hóf Sigfús Halldórs frá Höfnum með því að taka á sig krók, til þess að heimsækja föður sinn, Halldór Árnason, sem bjó (og býr enn) í Winnipeg. Þar var honum boðin ritstjórastaðan við annað að- alblað Vestur-íslendinga, Heims- kringlu. Lauk þar með Mexíkó-ferð- inni. Tók hann við ritstjórn Heims- kringlu í marzbyrjun árið 1924 og gegndi því starfi til ársins 1930. — Hver var stefna og markmið Heimskringlu undir ritstjórn yðar?~ — Hvað stjórnmál áhrærði fylgdi Heimskringla Bændaflokknum (The Progressives) að málum. En þótt hún léti tiltölulega mikið til sín taka innanlandsmál amerísk og alþjóða- mál, sem mikil ólga var í einmitt á þessum árum eftir stríðið, þá var Heimskringla þó fyrst og fremst blað ísl. þjóðrækni, ,enda var séra Rögnvaldur Pétursson aðalráðs- maður og einn af eigendum henn- ar. Ég held, að ég hafi fyrstur tek- ið það upp — markvisst — að velja jafnt úr öllum ísl. blöðum og birta í Heimskringlu, allar merkustu frétt ir frá íslandi, og þá fyrst og fremst af ýmsum framförum í landinu, og af ísl. mönnum, er höfðu getið sér frægð eða góðan orðstí heima eðaer- lendis. Auk þessa fluttum við helztu ritgerðir, kvæði o. fl., eftir ísl. höf- unda, er birtust í ísl. blöðum og tímaritum. fslendingar vestra tóku þessu yfirleitt vel og setur þetta enn sinn svip á ísl. blaðastarfsemi vest- anhafs, og gefst alltaf jafn ágæt- lega. Jafnhliða ritstjórn Heimskringlu starfaði Sigfús Halldórs í stjórn Þjóðræknisfélags Vestur-Íslendinga, og var ritari þess mörg árin, er hann dvaldi í Vesturheimi. — Nú lítur yngri kynslóð Vestur- íslendinganna auðvitað á sig, sem góða og gilda ameríska eða brezka •borgara. Getur þá ekki verið erfitt að samrýma þetta tvennt: að vera góður borgari síns lands og ísl. þjóð- ræknismaður? — Þetta virtist mjög mörgum, og jafnvel ýmsum forvígismönnum,. í fyrstu. En reynslan hefur orðið önn- ur. Hin gamla kenning: að til þess að verða nógu góður borgari í nýju landi, yrðu menn að brjóta skip sín í lendingunni, hefur ekki staðizt glímuna við Þjóðræknisfélagið. Nú er svo komið, að álitlegasti og efni- legasti hluti yngri kynslóðarinnar, er farinn að sannfærast um það, að það erenganveginn ósamrýmanlegt, heldur jafnvel þvert á móti, að vera góður borgari í sínu nýja landi, og leggja þó fulla rækt við sinn ísl. menningararf. — Þér hafið náttúrlega kynnzt Stephani G. Stephanssyni? 368 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.