Útvarpstíðindi - 04.11.1940, Síða 2
Ég stóð við hringdyrnar á Hótel Borg.
Sé ég þá, hvar drukkinn maður gengur inn,
en fylgist með allan hringinn, og kemur því
út á götuna aftur. Svona gekk það nokkrum
sinnum. Einu sinni stakk ljósklæddur mað-
ur sér fram fyrir hann og fór inn í sama
hólfi hringhurðarinnar. í sama bili kemur
dökkklæddur maður að innan og gengur á
undan honum þegar hann er á útleiðinni.
Þá segir karl undrandi: Sá var ekki lengi
að skipta um föt.
I
Þegar talið berst að því að skipta um föt,
dettur mér í hug, þegar ég eitt sinn kom
inn í búð og sagði við búðarstúlkuna.
Mætti ég fá að máta á mig 150-króna
fötin — þarna í sýningarglugganum?
Jú, þér gætuð víst fengið það, sagði hin
unga búðarstúlka vandræðaleg — en okkur
þætti betra, að þér gerðuð það hérna bak
við tjaldið.
Enskur liðsforingi, sem kom til Reykja-
víkur, fékk sér íslen/.kan leiðsögumann til
að sýna sér bæinn. Þótti gestinum húsin
hér vera lítil og kotungsleg. „Húsin yklcar
eru ekki stærri en rjómaterturnar hjá okk-
ur“, mælti hann. Islendingnum fannst fátt
um þennan samanburð og hugsaði sér að
sýna honum byggingar, sem þyldu nokkurn
samanburð við þær ensku. Gekk hann því
með honum að Þjóðleikhúsinu og mælti
hreykinn: „Þetta er nú þjóðleikhúsið okkar“.
„Hvað? Þettamælti gesturinn. „Það gæti
nú staðið á leiksviðinu í okkar þjóðleikhúsi'.
Héldu þeir nú áfram göngu sinni og stað-
ÚTVARPSTÍÐINDI
koma út vikulega að vetrinum, 28 tölubl.
16 blatSsíður hvert. 3. árgangur kostar
kr. 7.50 til áskrifenda og- greiöist fyrir-
fram. í lausasölu kostar heftiö 35 aura.
RitstjOri og ábyrgtSarmatSur:
KRISTJÁN FRIÐRIKSSON
Bergstaöastr. 48. - Sími 5046
^tgefandi: H/f. Hlustamlinn.
ísafoldarprentsmiðja h/f.
næmdust loks fyrir framan eina veglega
byggingu. „Hér er háskólinn okkar, mælti
leiðsögumaðurinn. „Er þetta háskólinn?“
spurði gesturinn hissa. „Hjá okkur er eng-
inn barnaskóli svona lítill“.
Daginn eftir gengu þeir fram hjá gasstöð-
inni. „Iívað er þetta? spurði Englending-
urinn. „Þetta“, sagði Islendingurinn kæru-
leysislega, „þetta er askja utan af rjóma-
tertu, sem við fengum frá Englandi“.
Á strandstað hér við lana stal maður,
Pétur að nafni, peysu úr strandinu. Hann
bað svo kunningja sinn að selja peysuna
i þorpi þar nálægt, en svo óheppilega
tókst til, að peysunni var aftui- stolið af
honum. Hann fer þá til Péturs og segir:
„Nú fór illa laxi, ég neyddist til að selja
peysuskrattann fyrir innkaupsverð".
Magnús á Grund í Eyjafirði, sem annál-
aður var fyrir ríkidæmi og snilli í fjár-
málum, sagði eitt sinn eftirfarandi: „Ég
læt krónurnar aldrei liggja hjá mér. Ég
læt þær fara, — en þær koma stundum
tví- og þrílembdar aftur".
*
„Dagur letingjans er löng andvökunótt".
Byggðu sjálfur musteri þitt og vertu þar
æðsti prestur Kristnamurti.
Jólabókin í ár uerður:
Kína - æfinfýralandið
Frásagnir um land og þjóðlíf, ejftir frú Oddnýu E. Sen. í bókinni er líka
sérstakur kafli með hinum undurfögru og sérkennilegu kínversku dæmisög-
um, sem nefndar hafa verið „perlur kínverskra fornbókmennta". Þessi
vandaða bók verður prýdd fjölda mynda.
34
ÚTVARPSTÍÐINDI