Útvarpstíðindi - 04.11.1940, Blaðsíða 5

Útvarpstíðindi - 04.11.1940, Blaðsíða 5
fi'ú Guðbjargar Vigfúsdóttur, og fer vel á, að hún skuli lesa ástaljóð. — Ekki efast ég um, að vel verði hlust- að a. m. k. meðal aðdáenda henn- ar: ungra manna víðsvegar um ^and. Ástalög af plötum fylgja á eftir lestri Guðbjargar. Smekkleg ráðstöfun, sennilega komin frá Páli tsólfssyni. Þá les Pálmi Hannesson rektor þjóðsögu, eflaust vel valda, og ekki er að efast um flutninginn. Pálmi les alltaf vel, en ekki sízt, þegar les- efnið er í frásagnar stíl. Kvöldið endar með gömlum dans- 'ögum, svo að menn geti fengið sér snúning að síðustu. Þeir, sem ekki eru ánægðir með óagskána, þetta kvöld, vil ég segja, aÖ kunni ekki gott að meta. Á mánudaginn verður talað um ^aginn og veginn. Sennilega verður hað Sigfús Halldórs frá Höfnum, Setti þá „treður upp“. Hætt við, að rabbið verði laust í reipum eins og stundum undanfarið — en við skul- Um vona það bezta. Þetta kvöld leikur útvarpshljóm- sveitin íslenzk lög, eftir íslenzka ^öfuntja> Meðal þeirra Karl Run- °lfsson og Sigurður Þórðarson. Þá mun og Gunnar Pálsson syngja nokkur lög við kvæði eftir Matthías 'f°chumsson í tilefni af afmæli kans. Áuk erindis Sverris Kristjánsson- ar verður aðalefni þriðjudagsins 5. symfonían eftir Beethoven, og skil- greiningar Páls ísólfssonar á því Verki. Ætíð síðan útvarpið tók til starfa, hefur fólk mjög almennt ^yartað um, að það ,,skildi“ ekki hinar svo nefndu symfoníur. Nú er tsekifæri til að kynnast viðleitni sér- fróðs manns í þá átt, að gera öðrum sinn skilning skiljanlegan á þessum verkum. Viðfangsefnið er óneitan- lega mjög erfitt fyrir P. 1., en gam- an að heyra, hvernig honum tekst. Kvöldvakan á miðvikudag er nokk- uð veigamikil. Knútur Arngrímsson talar um borgir miðaldanna. Þetta efni virðist nokkuð utan gátta. Hvað varð- ar okkur um borgir miðalda? En bót er í máli, að K. A. mistekst sjaldan að flytja snjöll og áheyrileg erindi, og hvað sem vali efnisins líður, þá býst ég við, að margir hafi gaman af þessu erindi, enda kemur það víða við. Hvernig getum vér hugsað okkur stóra borg, þ.ar sem engin göturæsi eru, heldur aðeins opnar skólprenn- ur eftir götunum miðjum, — þar sem vatn er borið í skjólum, — þar sem ekkert dagblað er til og allar aug- lýsingar því kallaðar á götum og út um dyr húsanna, — þar sem þrengsli eru svo mikil fyrir húsbyggingar, að efri hæðir húsanna slúta fram. yfir þær neðri o. s. frv. — Hvernig skyldi daglegt líf manna hafa verið þá? Hvernig umhorfs utanhúss og innan ? Ýmsum þessum spurningum svarar Knútur með ákveðnum dæmum, og er margt broslegt og fróðlegt í frásögn hans. Elinborg Lárusdóttir les kafla úr III. bindi ,,Förumanna“, sem heitir „Sólon Sókrates“, en það er nafn á Sölva Helgasyni. Ég hef margt gott heyrt um Sölva talað, en ekki hef ég dáðzt jafnmikið að honum fyrir neitt, eins og það, hvernig hann svaraði, þegar lesin var fyrir hann „reisu passi“, sem einhver hafði samið Sölva til háðungar (stæling á „passa“ Sölva sjálfs) og voru í honum taldir upp allir þeir kostir, sem einn mann geta prýtt og meira þó. Var þetta svo les- ið fyrir Sölva, og bjuggust menn auð- sjáanlega við, að hann yrði orðlaus að loknum lestrinum. En vopnin bitu ÚTVARPSTÍÐINDI 37

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.