Útvarpstíðindi - 04.11.1940, Blaðsíða 11

Útvarpstíðindi - 04.11.1940, Blaðsíða 11
stundum svo margar, að hann get- ur lifað af andvirði þeirra í fjóra mánuði. Árið 1890 fer hann á iðnsýningu. Þar sér hann skel og innan í henni er Buddhalíkneski úr perlum. Hann kaupir skelina með líkneskinu fyrir þrjár svartar perlur. En þessi skel með Buddhalíknesk- inu lætur hann ekki í friði. Hvernig myndaðist þessi perlu Buddha inn- an í skelinni? Einn dag brýtur hann skelina og sér, að guðinn, sem einn- ig hafði brotnað, var elcki gerður úr perlum, heldur gleri, en yfir glerinu var örþunnt perlumóðurlag. Sama dag og hann uppgötvar þetta, fer hann að finna prófessor í dýrafræði, Mitsukuri að nafni, sem flytur fyrirlestra um líf perluskelj- arinnar. Prófessorinn skýrir fyrir honum, hvernig (glerguðinn er til orðinn. Hann hefur verið látinn í lifandi slcel og skelin síðan myndað perlumóðurlagið utan um hann. — Þannig er hugsanlegt, að framleiða perlur með því að koma hnöttótt- um smákornum fyrir í skelfiskinum. En prófessor Mitsukuri varar áheyr- anda sinn við því, að gera sér allt of háar vonir í þessu efni. í Evrópu eru að vísu þannig ,,ræktaðar“ perlur á boðstólum, en þær komast í engan samjöfnuð við ósviknar perlur, verð- mæti þeirra er ekki mikið. Þær eru óreglulegar að lögun, og jafnvel þótt þær séu sléttar, eru þær aðeins hálfkúlumyndaðar. Þær eru gular, mattar og litbrigðasnauðar. Enn þá hefur engum tekizt að framleiða jafnar, hnöttóttar perlur. Nú veit Mikimoto nóg. Hann sér fyrir sér heiminn í geislandi perlu- ljóma. Hann hugsar aðeins um perl- ur, hann dreymir aðeins um perl- ur. Hann verður, hann vill, hann . . . einhvers staðar hjá þér Danslag kvöldsins, laugardaginn 16. nóv. Sungið af Herm.Guðmundssyni. Og dag hvern mætir hún mér, hún mænir burt, hún ílýtir sér, hún hverfur hljóðlát sinn veg, hún er hugsandi og þunglyndisleg. pað er fagurt í sveitum og fagurt við sjó, og þó finnur hún aldregi sumarsins ró, því öll hennar sóskinsþrá er einhvers staðar hjá þér. Og þegar bréf þín koma hníga höfug tár, hverfa í grasið, beizk og sár, — því hún veit það, að eitt sinn þú orkar ei meir, að þú ert þar sem mannkynið þjáist og deyr. Hver hræring í sál hennar ætið er einhvers staðar hjá þér. skal finna leyndardóminn um þró- un perlunnar. Hann flýtir sér aftur til Toba, selur eigur sínar: skeljar, perlur og allt sem hann á og flytur með konu sinni og þrem börnum til afskekktr- ar eyjar Tatokujima. Þar ætlar hann að uppgötva leyndardóminn um hnöttóttu perluna. Fyrstu þrjá mánuðina gerir fjöl- skyldan ekki annað en leita að ung- um lifandi skeljum. Þau finna marg- ar þúsundir perluskelja og í sumum þeirra eru stórar, fallegar perlur. Húsfreyjan og börnin eru glöð, en Mikimoto er öngur í hvert skipti, sem þau finna nýjar perlur. Hann kærir sig ekki um að finna perlur. Hann vill framleiða perlur. Framhald í næsta’ blaði. ÚTVARPSTÍÐINDI 43

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.