Útvarpstíðindi - 04.11.1940, Blaðsíða 14

Útvarpstíðindi - 04.11.1940, Blaðsíða 14
málinu stafar af hroðvirkni og fákunn- áttu nokkurra þeirra, er fást við þýðingar erlendra skcmmtisagna? Losendur blað- anna hljóta að gera þá sjálfsögðu kröfu, að þeir einir séu látnir fást við þýðingar neðanmálssagnanna, sem bera það mikið skyn á íslenzkt mál, að þeir geti klætt frá- sögnina í íslenzkan búning, en api ekki erlenda setningaskipan eða noti orðskrípi, sem særa og rugla heilbrigðan málsmekk lesendanna. Og þetta á víðar við en um blöðin. Ýmsum útgáfufélögum, sem hér starfa, hættir til að vanda minna mál á bókum sínum en sæmilegt er. En fyrst farið er að ræða um nokkuð það, sem miður er í ritmáli blaða og bólca, verður ekki komizt hjá að minnast á Ríkisút- varpið. það flytur þjóðinni hið mælta mál og hefur átt mikinn þátt í að auka þekkingu og málsmekk almennings, t. d. með því að halda uppi á vetri hvrejum ágætri kennslu í íslenzkri málfræði og setningafræði. En þó er það engan veg- inn saklaust af mállýtum og málleysum. þar hafa komið fram menn, sem ekki hafa vald á eðlilegu og réttu máli og sumir jafnvel ýmist verið flámæltir eða latmæltir. Ráðamenn útvarpsins haia það vitanlega sér til afsökunar, að þeir ráði ekki yfir málfæri þeirra, sem erindi flytja í útvarpið eða koma þar fram á annan hátt. En þá menn, sem mjög skort- ir á að kunni að fara með daglegt mál, á ekki að leiða að hljóðnemanum, til þess að flytja þar ræðu. Um það munu allir vera sammála. ' Ríkisútvarpið er menntastofnun, sem aðstöðu sinnar vegna hlýtur í framtíð- inni aö beita áhrifum sínum að því að glæða og fegra málsmekk almennings, enda munu forráðamenn þess líta þannig á. Illustendur eru líka <á verði um þá lilið málsins, sem að þeim snýr. þeir eru þakk- látir fyrir skemrntileg og fræðandi erindi, sem ýmsir ræðumenn liafa flutt skörulcga og á snjöllu ináli, cn við lélega flutt er- índi nota menn þá óvirku andstöðu að „skrúfa fyrir", þótt þeir annars hefðu tíma til að hlusta. Ríkisútvarpið hefur því tvöfallt hlut- verlc að vinna i þessuin efnum. það á að vera metnaðarmál þess að láta sér ein- ungis „um munn fara“ lireint og fagurt mál, og það á að fá þjóðina til að hlusta, en ekki sitja í þögulli andúð við ljóslaust viðtækið. Ríkisútvarpið vill það, þjóðin óskar þess. Og tekst þá tveir vilja. LÚÐRASVEITIN SVANUR (Sjá forsíðumynd) . 16. nóv. n. k. leikur Lúðrasveitin Svanur í útvarpið, m. a. í tilefni af 10 ára afmæli sínu þann dag. Aðalhvatamenn að stofnun hennar voru þeir Hallgrímur Þorsteinsson söngkennari, Ágúst Ólafsson gas- lagningamaður og Óskar Á. Þorkels- son verzlunarmaður. En í liði með þeim var strax í byrjun nokkur hóp- ur ungra áhugasamra manna.. Fljótt tókst þeim félögum að afla hljóðfæra handa sér — og það án nokkurs styrks ann,ars staðar frá. Hefur lúðrasveit þessi ætíð starfað algjörlega styrklaust og án þess að hafa tekjur svo teljandi sé. Allt hið mikla st,arf hljómsveitar- m.annanna — oftast æfingar annan hvern dag — hefur því verið unnið sem áhugastarf. Auk þess hafa félagarnir orðið að bera kostnaö af kennslu o. fl. Er því áhugi þeirra mjög verður virðingar. Hallgrímur var fyrsti kennari sveitarinnar, en þrjú síðustu ár hef- ur Karl 0. Runólfsson tónskáld stjórnað henni, og hefur hún tekið miklum framförum á því tímabili. í stjórn eru nú þeir Sveinn Sig- urðsson, Elías Valgeirsson og Hreið- ar Ólafsson. Mörgum hér í bæ mun vera hlýtt til þessar.ar lúðrasveitar, enda hefur hún komið fram til* skemmtunar og hátíðabrigða við fjölmörg tækifæri hér í bænum, og munu menn taka undir það með Útvarpstíðindum, að árna þessu starfsglaða afmælisbarni allr,a heilla í framtíðinni. 46 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.