Útvarpstíðindi - 23.12.1940, Síða 10
Lyga-Möíður
eftir
JÓHANN SIGURJÓNSSON.
Leikið í útvarpið 8. jan.
Hlutverk er þessi:
Hildigunnur.................... Soffía Guðlaugsd.
Flosi ............ Tómas Hallgrímsson
Njáll ............. Haraldur Björnsson
Bergþóra ..... Gunnþórunn Halldórsd.
Skarphéðinn ........... Brynjólfur Jóh.
þorgerður ........ Anna Guðmundsd.
Kolfinna..........................Nína Sveinsdóttir
þórkatla ............ Hildur Kalman
Mörður ..............................
Höskuldur ...........................
Ketill ............ Valdimar Helgason
Leikstjóri Har. Björnsson.
Lyga-Mörður er það eina af verk-
um Jóhanns Sigurjónssonar, sem al-
drei hefur komið fram á íslenzku
fyrr. — Eins og flest af verkum Jó-
hanns, var þetta upphaflega ritað á
dönsku og var sýnt einu sinni á
Konunglega leikhúsinu í Höfn. Það
þótti ekki njóta sín vel þar, enda
þótt mjög væri til sýningarinnar
vandað og ógrynni fjár kostað til.—
Sýningin þótti þó svipmikil á leik-
sviði, einkum sjálf Njálsbrenna.
Kunnugir telja Lyga-Mörð eitt
merkasta verk Jóhanns — enda
lengst af leikritum hans. Er sízt að
unda, þótt það sé all-fyrirferðarmik-
ið, þar sem það tekur til meðferðar
allan aðalkjarnann í Njálssögu.
Forleikurinn er það eina af leik-
ritinu, sem flutt hefur verið í út-
varp áður — og hann hefur einnig
verið sýndur á Akureyri fyrir nokkr-
um árum (af H. B. og Ág. Kvaran)’.
Hann fer fram í klettagjá, þar sem
þeir Valgarður grái og Mörður son-
ur hans ræðast við. Eins og aðrir Is-
lendingar, hefur Valgarður grái orð-
ið að hílíta úrskurði Ljósvetninga-
goðans á Alþingi árið 1000 og játa
kristna trú. En hann hatar þessa trú
og blótar á laun sín gömlu goð. 1
forleik þessum kemur skýrt fram
hatur hans á kristindóminum og öf-
undin til Njáls og sona hans. 1 sam-
tali þessu leggur Valgarður syni sín-
um þau ráð, sem verða orsök að vígi
Höskuldar Hvítanessgoða, Njáls-
154
ÚTVARPSTÍÐINDI