Útvarpstíðindi - 08.06.1942, Síða 14

Útvarpstíðindi - 08.06.1942, Síða 14
I varpsráðs, dags. 10. febr. og undirritaÖ af for- manni, Jóni Eyþórssyni, var svohljóðandi: ..Utvarpsráð getur ekki fallizt á staðhæf- ingar yðar, að erindi Sigurjóns læknis, ..Lífskjör og heilsufar“, hafi verið svæsin á- deiluræða. Utvarpsráð vill vinsamlega benda yður á, hvort yður muni ekki skorta fræðileg skil- yrði til að halda uppi rökræðum í máli því, sem um er deilt. Má og á það minna, að þér hafið þegar fengið að lesa í útvarpið kafla úr þýddri bók, sem harðlega hefur verið gagn- rýnd af sérfræðingum. Utvarpsráð telur því ekki rétt að verða við ósk yðar um erindaflutning, frekar en orð- ið er, um þessi efni. Ut af niðurlagsgrein í bréfi yðar skal það tekið fram, að forseti Náttúrulækningafélags Islands hefur á undanförnum árum flutt all- mörg erindi í útvarpið, sem hvergi nærri hafa verið laus við ádeilur. Þykist útvarpið því á engan hátt standa í óbættum sökum við Náttúrulækningafélagið, þótt það kunni að hafa orðið fyrir nokkurri gagnrýni í út- varpserindum Sigurjóns læknis'*. I alllöngu bréfi dags. 24. febrúar, hrek ég þessar ástæður útvarpsráðs — ef ástæður skyldi kalla — lið fyrir lið. Rúmsins vegna sleppi ég að greina frá því hér, enda þarf ekki langa yfir- vegun til að sjá, að bréf þetta er ekkert annað en marklausar og einskisverðar viðbárur. Heimta ég því í bréfi mínu skýr og afdráttar- laus rök fyrir synjuninni á erindi mínu, ef út- varpsráð vilji ekki liggja undir því ámæli, að hafa beitt skýlausri hlutdrægni. Svar útvarps- ráðs, dags. 4. marz, var stutt og laggott, einnig undirritað af J. E. ,,Þar sem þér óskið eftir ..skýrum og af- dráttarlausum rökum“ fyrir synjun útvarps- ráðs á flutningi erindis yðar, skal yður tjáð, að útvarpsráð telur sér ekki skylt að rökræða ástæður fyrir því, að erindum er hafnað eða þau samþykkt. Mundi slíkt vera ærið taf- samt, enda ekkert sem mælir með því, að mehn eignist slíka kröfu á hendur útvarpinu, þótt þeir bjóði því efni til flutnings“. Vörnin er hér jafnmáttlaus og fyrr, ,,rökin út í hött. Því að kröfur mínar um ,,skýr og af- dráttarlaus rök“ eru engan veginn byggð á því, að ég hafi ,,boðið því efni til flutnings“, held- ur hinu, að ég þykist beittur órétti, að fá ekki að verja mig og minn málstað, úr því leyft hef- ur verið, að á mig væri ráðizt. Eg hefi því þrefalda ákæru á útvarpsráð út af þessu máli: 1. Það leyfir flutning tveggja útvarpserinda, sem innihalda harða ádeilu á félag og ein- staka menn, eh ádeilur eru bannaðar í regl- um útvarpsins; auk þess eru þar svo mikiar málalengingar, að stytta mætti það a. m. k. um helming, án þess að efnið raskaðist. 2. Það synjar mótaðilanum færis á að reifa mál- ið frá sínu sjónarmiði. Erindi Jónasar Kristj- ánssonar hafa fjallað um önnur efni, og koma að því leyti þessari deilu ekkert við. 3. Það rökstyður synjunina með vífilengjum ó- samboðnum stofnuninni. Ríkisútvarpið er ekki einkaeign útvarpsráðs, heldur eign allrar þjóðarinnar. Misbeiting valds, slík sem þessi, er því vítaverð og á að koma fyrir almennings sjónir. Utvarpstíðindi eru ein- mitt réttur vettvangur fyrir slíka gagnrýni. Vil ég tjá ritstjórunum þakkir mínar fyrir að birta þessa greinargerð í blaði sínu, og tel að þeir sýni með því, að útvarpsnotendur geti öruggir litið á blað þetta sem sitt málgagn, þar sem þeir geti komið á framfæri kurteislega orðuðum og vel rökstuddum aðfinnslum og gagnrýni um dagskrá og starf útvarpsstjórnarinnar, sem hljóta að veita forráðamönnum útvarpsins ólíkt meira siðferðilegt aðhald, heldur en bréf til þeirra sjálfra. Reykjavík 10. apríi 1942. Björn L. Jónsson. Mishermt. Jón Páisson, fyrrv. bankagjaldkeri, óskar þess getið, að það sé rangt hermt í ,,rödd“ í Ut- varpstíðindum fyrir skömmu, að hann hafi sagt í ræðu sinni á Arnesingavökunni, að Árnesing- ar tali betri íslenzku en aðrir landsmenn. Hann kveðst einungis hafa vitnað í orð merks manns fyrir mörgum árum. Seljum sútaðar gærur, hvítar og mislitar. Sútum allskonar skinn. Kaupum selsskinn, kanínuskinn, kálfs- skinn og refaskinn hæsta verði. Sútunarverksmiðjan h. f. Vatnsstíg 7 — Reykjavík. 354 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.