Útvarpstíðindi - 08.06.1942, Page 15

Útvarpstíðindi - 08.06.1942, Page 15
Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunarverk er a8 ná til allra þegna landsins meö hverskonar fraeðslu og skemmtun, sem því er unnt að veita. AÐALSKRIFSTOFA ÚTVARPSINS annast um afgreiðslu, fjárhald, útborganir, samn- ingagerðir o. s. frv. Útvarpsstjóri er venjulega til viðtals kl. 2—4 síðdegis. Sími skrifstofunnar er 4993. Sími útvarpsstjóra 4900. INNHEIMTU AFNOTAGJALDA annast sérstök skrifstofa. Sími 4998. ÚTVARPSRÁÐIÐ (Dagskrár8tjórnin) hefur yfirstjórn hinnar menn- ingarlegu starfsemi og velur útvarpsefni. Skrif- stofan er opin til viðtals og afgreiðslu frá kl. 2—4 BÍðd. Sími 4991. FRÉTTASTOFAN annast um fréttasöfnun innanlands og frá útlönd- um. Fréttaritarar eru í hverju héraði og kaupstað landsins. Fréttastofan starfar f tveim deildum; sfmi innanlendra frétta 4994; sími erlendra frétta 4845. AUGLÝSINGAR Útvarpið flytur auglýsingar og tilkynningar til landsmanna með skjótum áhrifamiklum hætti. Þeir, sem reynt hafa, telja útvarpsauglýsingar áhrifamestar allra auglýsinga. — Auglýsingasími 1095. VERKFRÆÐINGUR ÚTVARPSINS hefur daglega umsjón með útvarpsstöðinni, magnarasal og viðgerðastofu. Sími verkfræðings 4992. VIÐGERÐARSTOFAN annast um hverskonar viðgerðir og breytingar viðtækja, veitir leiðbeiningar og fræðslu um not og viðgerðir viðtækja. Sfmi viðgerðarstofunnar 4995. TAKMARKIÐ ER: Útvarpið inn á hvert heimili! Allir landsmenn þurfa að eiga kost á þvf, að hlusta á æðaslög þjóðlífsins; hjartaslög heimsins. RíkisútVarpiS. **♦♦*♦♦•♦ ** ************ ****** ********* *** ♦** *** *l* ♦**♦«• Þegar þér þvoið úr TIP TOP I eina vatnsfötu af köldu vatni er (læfilegt að láta pk. af Tip Top sjálfvirku þvottaefni. Hrærið vatnið og þvottaduftið saman í graut, og bætið svo enn í vatni, þangað til það er gráleitt á lit (mjólkurlitt). Ur Tip Top-legi má þvo allskonar þvott, hreinan og óhreinan, viðkvæman og grófan. Ullarföt, gluggatjöld, flónel og silki má þvo úr Tip Top, en athuga skal þá að hella Tip Top-leginum í volgt vatn en ekki kalt. Sjóðið ekki og nuddið ekki, en hreyfið ofurlítið við þvottinum með hend inni eða spítu. Skolið að minnsta kost' tvisvar úr köldu vatni. A sama hátt skal þvo mislitan fatnað. Mjög óhreinar flíkur skal láta liggja í leginum yfir nótt, en hann hafður helm- ingi veikari (1/ pk. í tvær fötur af vatni). Til hreingerninga er Tip Top óvið- jafnanlegt. Þá skal láta 1/ úr pk. í ca. 1/j úr vatnsfötu af köldu vatni. Hrært vel saman. Lögurinn er borinn á með mjúkum hárkúst og þveginn samstundis af með köldu vatni. Þveginn aftur tvisvar með köldu. Notið alltaf TIP TOP ÚTVARPSTÍÐINDI 355

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.