Útvarpstíðindi - 02.06.1947, Qupperneq 24
241)
ÚTVARPSTÍÐINDI
KAFLI ÚR KLDHÚSDAGSRÆÐU.
Margir af alþingismönnum okkar eru
vel hagorðir, svo sem kunnugt er. í eld-
húsdagsrœðu sinni í útvarpinu komst
Skúli G'uðmundsson svo að orði: — „í
næsta mánuði verður lýðveldi okkar
þriggja ára. Sú lýðveldisbygging, sem hér
hefur verið að rísa á þessum árum, kem-
ur mér þannig fyrir sjónir, í fám orðuin
sagt:
IIús í smíðuin. Hljómar í viðum
hefils raust og sagar kliður.
Háa stiga á stafni og hliðum
stíga smiðir upp og niður.
Hainrar og axir höggva og sníða.
Höllin á að fríkka og stækka.
Efni safna ýtar víöa.
Enn skal lurninn breikka og hækka.
Yfirsmiður, æruverður,
aldarprýði, líkur jarli,
öllu stjórnar, aldrei verður
orða- og ráðafáll þeim karli.
Tæmist vorar timburlilöður,
íæknin hjargar, nýrra daga.
Allar hallar undirstöður
upp í turninn smiðir draga“.
VORVÍSUR.
Eftirfarandi vorvísur hafa Útvarpstíð-
indum borist frá Auðunni Br. Sveinssyni
frá Refsstöðum:
Gróa allar grundir senn,
gaman spjalla tungur.
Vorið kallar: Vakna enn
viðar fjallabungur.
Leysist vandi, brosa blóm.
Blána grandar heiðar.
Geysist andi. Hæltkum hljóm.
Hlána strandir breiðar.
BLAÐAMANNASKÁL.
1 miðdagsveizlu er Kristján Skagfjörö
framkvæmdarstjóri Ferðafélags islands
liélt blaðainönnum, kastaði Hallgrímur
Jónasson kennari fram þessari stöku:
Skagfjörð fann að þorsti þá
þessum brann í sálum.
Blessum liann og bergjum á
hlaðamanna skálum.
Á FERÐ UNDIR ESJU,
Og þessar stökur orti Hallgrímur eilt
kvöld um sólarlagsbil — á ferð undir
Esju:
Vermir blærinn völl og hól,
verpur bæinn gljáa;
eftir daginn ekur sól
út á sæinn bláa.
Geislarjóð þá fegrar fjöll
l'eðraslóðar minnar.
Laugasl blóði Esjan öll
aftanglóðar þinnar.
Sýnist hik á sólarför,
særinn kvikur blánar —,
er hún stikar yztu skör
úti’ í bliki Ránar.
Greiptu hvarma glöð og hrein
gullin bjarma fJosi.
Djúpra harma mýktu mein
mildu varma brosi.
Utvarps-
AUGLÝSINGAfí og
TlLKYNNlNGAfí
Afgreiddar frá kl. 9 til 11
og 16.00 til 18.00 alla virku
daga.
Sunnudaga og helgidaga
kl. 11.00—11.30 og 16—17,
eigi á öðrum tímum.
Sími 1095.