Bankablaðið - 01.12.1940, Page 23
BANKABLAÐIÐ
25
sýslumaður, sem ef til vill hefir setið
á tali við bankastjórnina og rætt um
horfur fyrir rekstrarláni á næsta ári,
og fátækur skólapiltur, glaður yfir því
að hafa getað selt smávíxil. Þarna
bregður fyrir bónda og á hæla hans
fer einn af hermönnum hans hátign-
ar Bretakonungs. Svo ærið er hjörðin
mislit.
Nú breytir afgreiðslan um svip á fá-
um mínútum. Féhirðarnir hamast við
að telja sjóði sína, en aðrir banka-
þjónar telja saman í bókum sínum.
Sjálfsagt flýgur þá hugur sumra jafn-
framt til ýmissa atburða dagsins, smá-
skrítinna og alvarlegra. — Lífið í af-
greiðslunni er síbreytilegt. Það er speg-
ilmynd aldarandans og atvinnuveg-
anna á hverjum tíma.
J. Þ.
Yfirmerm og und irgefnir....
i
Ef ég væri vinnuveitandi og hefði
í þjónustu minni ungan, duglegan
mann, sem hefði lítið kaup, mundi
mér finnast það Ijóður á ráði hans, ef
hann væri alltaf jafnánægður með sitt
litla kaup. — Ég geri ráð fyrir, að svo
væri ástatt, að verzlun mín, eða fyrir-
tæki það, er ég veitti forstöðu, gengi
vel og gæti greitt laun eftir verðleik-
um. Mér mundi finnast hinn unga
mann skorta hina sjálfsögðu dyggð
hvers dugandi manns, sem vinnur
mikið starf trúlega og vel, að vilja
bera úr býtum réttlát laun verka sinna.
Því verður ekki neitað, að of lítið
tillit virðist oft tekið til þess í sumum
bönkunum a. m. k. að fólk verður að
fá þau laun fyrir starf sitt, að það sé
sæmilega ánægt með kjör sín. Það er
eðlilegt að laun séu lítil fyrst í stað,
en ef bankarnir taka fólk, á annað
borð, sem fasta starfsmenn, þá verður
að greiða því viðunanleg laun. Dæmi
eru til þess, nú á tímum, að dugandi
bankamenn hafa ekki eins mikil laun
á mánuði og verkamenn hafa á viku,
við létta vinnu. Þótt hér sé, sennilega,
aðeins um bráðabirgðaástand að ræða,
þá er vitanlegt, að 200—250 kr. laun
á mánuði er gersamlega óþolandi fyr-
ir menn, sem hafa unnið 3—7 ár í
stofnunum er stórgræða og geta mæta-
vel borgað lífvænlegt kaup. — Slík
laun ala upp í mönnum ólund og
kergju og eru vís til þess að drepa í
þeim starfsánægju og lífsgleði. Þau
eru jafn hættuleg fyrir yfirmenn og
undirgefna.
FRÉTTIR...
Utanfararstyrk úr Námssjóði starfs-
manna Landsbankans hafa fengið:
Ungfrú Sigrún Hansen, til náms í
U. S. A. — Hjálmar Jónsson, til náms
í Englandi.