Bankablaðið - 01.12.1940, Qupperneq 24

Bankablaðið - 01.12.1940, Qupperneq 24
26 BANKABLAÐIÐ Nýr afgreiðslusalur Nýr afgreiðslusalur í Landsbankan- um var opnaður 16. ágúst í sumar. Við það tækifæri hélt Georg Ólafsson bankastjóri eftirfarandi ræðu: Þann 1. júlí 1886 tók Landsbank- inn til starfa í húsinu nr. 3 við Banka- stræti, og var hann þar í 12 ár eða til ársins 1898 er bankinn flutti í hús það, sem hann hafði sjálfur látið reisa við Austurstræti. — í aprílmánuði 1915 eyddist húsið af eldi í brunanum mikla, er lagði mörg hús við Austur- stræti og Hafnarstræti í rústir. Eftir brunann fékk bankinn húsnæði í nú- verandi pósthúsi, og 1917 flutti hann í nýbyggt hús við Austurstrtræti, er Nathan & Olsen höfðu látið reisa, og er þar nú Reykjavíkur Apótek. — Á árunum 1922 og 1923 lét bankinn endurbyggja bankahúsið við Austur- stræti, allmjög stærra en það var í upphafi, og flutti bankinn í hið nýja húsnæði 1. marz 1924. Var þá gert ráð fyrir, að bankinn hefði fengið hús- næði, sem myndi verða honum nægi- legt um langan aldur. En það voru ekki mörg ár liðin, þegar sýnt var, að bankanum yrði brátt þörf á enn rýmra húsnæði, og með hliðsjón af framtíð- arþörfum bankans voru hinn 13. sept, 1928 fest kaup á nágrannaeign bank- ans, Ingólfshvoli. Nú hafa viðskipti bankans á und- anförnum árum aukizt svo mjög, að um all-langt skeið hefir verið þröngt við afgreiðslu, og hefir það verið til mikils baga. Og síðustu árin var af- greiðslusalurinn á neðstu hæð húss- ins orðinn með öllu ófullnægjandi sökum þrengsla. Var því sú ákvörð- un tekin að stækka húsið og byggja við það, og skyldi einkum afgreiðslu- salurinn stækkaður. Byggingarframkvæmdir hófust í ágúst 1938, og var steypuvinnu lokið í febrúar 1939. Stærð neðri hæðar og kjallara hvors um sig er 234 fermetrar, efri hæðar 82 fermetrar, en byggingin er tvær hæðir og kjallari. Uppbygging hússins var að ýmsu leyti hin vandasamasta, og má t. d. geta þess, að sjávar gætir 2 metra ofar neðsta gólfi, þegar stór- streymt er, og meðan steyptar voru súlur, hvíldi norðurhlið bankahússins, og suðurhlið Ingólfshvols á bráða- birgðatrésúlum. Styrkleiki súlna og veggja er miðaður við það, að hægt verði að hækka bygginguna um tvær hæðir, og er þá ætlunin, að Ingólfs- hvoll verði rifinn, en byggingin nái þá yfir um horn Pósthússtrætis og Hafn- arstrætis. Mestan hluta kjallarans taka aðal- féhirzla og verðbréfageymsla bank- ans og nauðsynleg herbergi í sam- bandi við þær. Þar er og herbergi fyrir seðlagreiningu og eyðingu seðla, sem teknir hafa verið úr umferð.

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.