Bankablaðið - 01.12.1940, Qupperneq 27

Bankablaðið - 01.12.1940, Qupperneq 27
BANKABLAÐIÐ 29 Ljósmóðirin Eftir Kristján Sig. Kristjánsson Þau eru mér enn í fersku minni síð- ustu jólin mín heima í föðurgarði. Minningin um þau hefir jafnan verið einn þátturinn í jólahugsunum mín- um síðan. Og nú gægist minningin fram í huga minn, þegar ég hugsa um jólin, sem bráðum ganga í garð. Það var ‘aðfangadagskvöld. Karl- mennirnir voru komnir inn frá útiverk- unum, mamma var að baka pönnu- kökur í eldhúsinu, en Sigga systir mín hafði ýmsum öðrum störfum að sinna. Hátíðablærinn var að færast yfir, og það var kyrrð og friður á heimilinu. Mér varð reikað hingað og þangað um bæinn, og naut ég ánægjunnar af því að vera heima. Ég var þá í skóla, og var einungis heima í jólaleyfinu. En þegar ég hafði reikað um bæinn nokkura stund, datt mér í hug að bregða mér snöggvast út í hressandi næturloftið. Veðrið var yndislega fag- urt, og vetrarnóttin skartaði í öllum þeim skrúða, sem hún átti til. Himin- inn var heiður og dimmblár, þéttstirnd- ur og dásamlegur, norðurljósin leiftr- uðu um hvelfinguna í yndislegu lit- skrúði, og máninn 1 fyllingu varpaði bjarma sínum yfir fannþaktar fjalla- hlíðar og grundir. — Allt var kyrt og hljótt. — Ég leit yfir grundirnar, neðan við bæinn, án þe$s að búast við að sjá nokkura hryefingu, því venjulega var lítið um ferðalög á aðfangadagskvöld- ið. En nú sá ég að einhver var að koma heim túnið, og stefndi til bæjar. Mér var forvitni á að vita hver komumaður væri, og beið því komu hans, — bjóst við að það væri einhver kunnugur af næstu bæjum. En gestur- inn var ókunnugur öldungur, hvítur fyrir hærum með mikið skegg og ull- hvítrt. Hann var í svartri úlpu yzt fata, með loðhúfu á höfði og langan göngu- staf í hendi. Andlitið var gáfulegt og frítt, og yfir augunum hvíldi einhver heillandi draumblær. Komumaður baðst gistingar, og bauð ég honum þegar til baðstofu. Vissi ég að allir gestir, sem að garði komu — voru velkomnir á heimili for- eldra minna, hvernig sem högum þeirra var háttað. Og gesturinn naut með okkur jólagleðinnar, með mikilli ánægju. Um kvöidið var hann glaður og reifur, og ræddi við okkur um ýms mál, mest þó um andleg efni. Þar á meðal sagði hann okkur helgisagnir og æfintýri, og höfðum við mikla á- nægju af. Og ekki minnist ég þess, að hafa orðið fyrir jafnheillandi áhrifum í návist nokkurs annars manns. í vökulokin var honum vísað til sængur í herbergi með mér, í öðrum enda bað- stofunnar. f herberginu voru tvö rúm,

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.