Bankablaðið - 01.12.1952, Qupperneq 18

Bankablaðið - 01.12.1952, Qupperneq 18
FRÁ GMÆNLANDI Guðjón E. Jónsson, í'yrrv. útibússtjóri á ísafirði, var í sumar í nokkrar vikur í Græn- landi á vegum útgerðardeildar Lands- bankans. Þar sem það er fremur sjaldgæft að ís- lendingar eigi þess kost af eiginn raun að sjá og kynnast Grænlandi, þá fór ritstjóri Bankablaðsins þess á leit við Guðjón, að liann segði lesendum blaðsins frá veru sinni í Grænlandi. Varð hann góðfúslega við beiðni blaðsins og fer frásögn hans hér á eftir: Ég dvaldi á Grænlandi síðastliðið sumar um nokkurra vikna skeið í firði þeim á vesturströndinni, sem nefnist á máli inn- fæddra: Kangerdluarssoruseq þ. e. fjörður sem ekki er neinn fjörður. Ekki fór ég víð- ar og verða því þessar fáu línur bundnar við þennan stað. En til gamans má þó geta nokkurra upplýsinga um landið almenns eðlis í örstuttu máli. Grænland er stærsta eyland jarðarinnar og talið að flatarmáli 2182000 ferkílómetrar. Það nær frá 83° 37' n. br. til 59° 46', Kap Farvel, eða yfir rúm- ar 23 breiddargráður. Það er 50 sinnum stærra en Danmörk eða 20 sinnum stærra en ísland. Ef Grænland væri flutt til Ev- rópu mundi það ná allt frá Skagerak og góðan spöl suður eftir Afríku. Þetta gefur nokkra hugmynd um hina feiknalegu stærð landsins. Mestur hluti þess er hulinn jökli árið um kring. Höfin sem liggja að Græn- landi eru öll köld og allir straumar kaldir, en þcir flytja með sér mikið af ís, sem kæl- ir loftið við strendurnar. Landið er því miklu kaldara en lönd í Evrópu, sem liggja á sama breiddarstigi. Heimaþjóðin er talin vera um 20 þúsundir, en auk þess nokkur liundruð Danr búsettir í ýmsum kaupstöð- um landsins. Grænlendingar kalla sig „Kalatdlit", en annars nefna þeir sig einnig „Inuit“, sem er flt. af „Inuk“ þ. e. maður. Meðalhæð er 167 cm, hárið er svart, strítt, breið og útstæð kinnbein og skásett augna- lok. Á vesturströndinni eru Grænlending- ar nú orðnir töluvert kynblandaðir, sér- staklega Dönum og einnig Hollendingum. En í nyrztu liéruðum landsins og á austur- ströndinni eru enn þá smáflokkar, sem eru lítið kynblandaðir. Höfuðborgin er Godthaab og Jw hefur landshöfðinginn, sem er æðsti embættis- rnaður landsins, aðsetur og ýmsir aðrir danskir menn á vegurn stjórnarinnar. í firði þeim, sem hér að framan var nefnd- ur, eru engir Grænlendingar búsettir, Jrar eru aðeins 3 athafnastöðvar Evrópumanna. Yzt að norðanverðu er Færeyingahöfn, er hún, eins og nafnið bendir til, aðseturs- staður færeyskra fiskimanna og hefur ver- ið Jtað síðan árið 1925. En auk þess er Jaar starfrækt af hálfu Dana: hafnargæzla, sjúkrahús og loftskeytastöð. Yfirmenn eru allir Danir, en nokkuð af grænlenzku Jojón- ustufólki og verkamönnum. Starfstími Jjess- ara embættismanna er á ári hverju frá Jdví í marz og þar til október eða nóvember. Þetta er nokkurskonar stjórnaraðsetur fjarðarins, engin útgerð J^aðan né önnur viðskipti. Hafnarstjórinn hefur verið Jtarna óslitið á ári hverju síðan 1925. Hann er farinn að eldast og býst við að hætta bráð- lega og mér heyrðist frekar á honum, að hann mundi sakna Jiess að fara heirn al- farinn. Svona geta nienn vanist sínu út- legðar hlutskipti. 28 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.