Bankablaðið - 01.12.1952, Qupperneq 24
Halldór Stefánsson,
sextugur
Halldór Stefánsson, bankaritari í Aust-
urbæjarútibúi Landsbankans, varð sextug-
ur þann 1. desember s. 1. og samt er liann
alltaf jafn ungur. Sú góða vísa er aldrei of
olt kveðin, að það er ekki árafjöldinn sem
sker úr um aldurinn. Ellin, það er áhuga-
leysið, neikvæð viðbrögð við lífinu. Æsk-
an er áhugi og jákvæð viðbrögð gagnvart
lífinu. Og æskumaður er Halldór í fyllsta
máta. Vakandi áhugi við allt, sem hann
grípur höndum til. Trú á lífið og mennina.
Ekkert mannlegt er honum óviðkomandi.
reglum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sú stofn-
un yrði þá að endurskoða samþykktir sín-
ar. Það kann að verða nauðsynlegt að taka
lán erlendis til styrktar pundinu fyrst í
stað. Gullverðið á heimsmarkaðnum
jryrfti einnig að breytast, en það mundi
leiða lil aukinna varasjóða í gulli og doll-
urum utan Norður-Ameríku. En sú stað-
reynd er alveg augljós, að, ef pundið á að
geta haldið stöðu sinni, verður sem fyrst að
taka upp aftur gullinnlausn. Ef menn fara
að líta á sterlingsvæðið sem innilokað liag-
kerfi með verzlunarhaftastefnu, þá ber það
í sér þá bakteríu, sent mun smámsaman ríða
því að fullu.
Ef velja ber á milli eldskírnar, án þess
að vonlaust sé að komast klakklaust í gegn-
um hana, og áhættunnar, sem henni fylgja,
annarsvegar en liins vegar liægfara veikl-
unar, kýs ég heldur fyrri kostinn. Fyrst og
fremst vegna þess, að ég er bjartsýnismaður
og vegna þess, að ég held, að þetta gamla
land búi enn yfir nægum lífsþrótti, sveigjan-
leik og seiglu, ekki aðeins til Jtess að það lifi
þessa eldskírn af, heldur jafnvel til þess að
sækja verulega fram.
Halldór er þjóðkunnur maður fyrir sög-
ur sínar og Iöngu eftir að bankamaðurinn
Halldór Stefánsson er gleymdur mun nafn
rithöfundarins geymast sem eins brautryðj-
andans í hinni djörfu framsókn íslend-
inga á fyrri hluta 20. aldar, er hinn mikli
lífskraftur þjóðarinnar leystist úr læðingi
að fengnu frelsi.
En við, sem þekkjum Halldór, gleymum
lieldur ekki bankamanninum. Þeir, sem
seinna kynna sér rithöfundarferil Halldórs,
rnega líka muna það, að í bankastörfum
sínum er hann vandvirkur, öruggur og
verkkunnandi, svo að af ber.
Sá, sem þekkir Halldór af langri við-
kynningu, getur ekki minnzt hans svo, að
honum verði ekki einnig rætt urn fjölhæfni
hans. Hann er að sjálfsögðu víðlesinn og
margfróður um þjóðleg fræði og erlendar
bókmenntir, svo sem vera ber um skáld,
enda mikill málamaður. Hann er og fróður
og fullur áhuga um vísindalegar uppgötv-
anir og heimspeki, forna og nýja. Hagur
á allt það er hann tekur höndum til.
Vinum sínum er hann hinn góði félagi:
gleðimaður á góðri stund, sögumaður góð-
ur, unnandi ljóða og lista. Meistari ungum
skáldum.
Megi þjóðin enn lengi njóta skáldsins,
og vinir vinarins þar sem Halldór er. H. Þ.
34 BANKABLAÐIÐ