Bankablaðið - 01.12.1952, Page 25
7
Tómlístaþættír í Utvegsbankamum
Hinar miklu og ágætu breytingar, er gerð-
ar voru á húsakynnum starfsfólks Útvegs-
bankans í upphafi þessa árs, með stækkun
kaffistofu bankans og hátíðarsals, hafa
skapað fólkinu í bankanum stóraukin skil-
yrði til meiri fjölbreytni í allri félagsstarf-
semi.
Einn fyrsti þáttui' þeirrar nýbreytni, sem
hin bættu skilyrði sköpuðu, var að hefja
fræðslu og menningarstarfsemi.
Fyrir áeggjan áhugamanna um tónlist
var hafin í hátíðasal Útvegsbankans flutn-
ingur tónverka eftir Beethoven á 125. dán-
ardegi tónskáldsins. Dr. Páll ísólfsson, tón-
skáld flutti þá fróðlegt og skemmtilegt er-
indi um Beethoven og útskýrði fimmtu
symphoníu tónskáldsins, er leikin var við
þetta tækifæri í hátíðasal bankans.
Næsti tónlistaþáttur var haklinn mán-
uði síðar og flutti þá herra söngstjóri Ro-
bert A. Ottóson afar fróðlegt og lifandi
erindi um Schubert; æfi og starf hins
mikla tónskálds. Var við það tækifæri leik-
in ófullgerða hljómkviðan eftir Schubert.
Þriðji þáttur þessarar tónlistarstarfsemi
var í síðasta mánuði og flutti þá herra tón-
listarfræðingur Jón Þórarinsson fróðlegt
og athyglisvert erindi um eitt víðfrægasta
núlifandi tónskáld, Paul Hindemith og út-
skýrði hið þekkta tónverk hans, symphon-
íuna Matthías málara og voru þættir úr
henni leiknir á hátíðinni.
í þeim tónlistarþáttum, er hér hefur ver-
ið frá sagt að fluttir hafi verið í Útvegs-
bankanum á þessu ári, hafa þrír þjóðfrægir
ágætismenn á sviði tónlista lagt sterka hönd
á plóginn til þess að koma í framkvæmd
hugsjón fárra manna, er fundist hefur
meira um að kynnast fagurri list en fá-
nýtri yfirborðsmenntun.
Stjórn starfsmannafélags Útvegsbankans
og allir þeir, c-r notið hafa ánægjustunda
þessara ágætu listamanna, þakka þeim af
alhug góðar undirtektir og alveg sérstak-
lega vinsamlega fyrirgreiðslu.
Það skal fram tekið, að starfsfólki allra
bankanna í Reykjavík hefur verið boðið
að sækja þætti þessa og mun svo áfram
verða.
Til þess að skýra frekar upphaf og til-
gang þessa nýja þáttar þykir rétt að birta
hér í Bankablaðinu ávarpsorð er flutt voru
í byrjun hins fyrsta tónlistaþáttar:
„Fyrir fimmtán árum síðan var erki-
biskupnum af Kantaraborg boðið á árs-
hátíð bankamanna í Bretlandi og hann
beðinn að flytja þar ræðu. Erkibiskupinn
flutti snjalla og sniðuga ræðu á samkom-
unni og sagði m .a. í upphafi ræðu sinnar,
að þetta væri í fyrsta sinn í sögunni að
starfandi embættismaður kirkjunnar kæmi
í mannfagnað brezkra bankamanna og tæki
þar til máls. Hann kvaðst með miklum
kvíða hafa þegið hið góða boð, því það
væri hvorki í hans verkahring eða venja að
umgangast of mikið þá menn, sem daglega
þylja bænir sínar við altari Mammons og
búa rammbyggilega um sig bak við járn-
girta glugga og afgreiðsluborð.
En við nánari athugun og eftir að vera
kominn í þennan hóp kvaðst erkibiskupinn
sjá marga vini og stuðningsmenn síns mál-
staðar meðal brezkra bankamanna og væri
honum óblandin gleði að vera mættur á
þessum góðra vina fundi.
BANKABLAÐIÐ 35