Bankablaðið - 01.12.1952, Side 27

Bankablaðið - 01.12.1952, Side 27
FÉLAGSMÁL BANKAMANNA ÁHEYRNARFULLTRÚI. Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja bauð að venju áheyrnarfulltrúa frá Sambandi ísl. bankantanna til setu á þingi Bandalagsins, sem haldið var í haust í Hátíðasal starfsmanna Útvegsbankans. Ein- varður Hallvarðsson, varaformaður S. í. B., sat þingið og flutti Jdví kveðju og árnaðar- óskir bankamanna. LA UNAMÁLANEFND. Launamálanefnd Sambands ísl. banka- manna hefir ekki enn haft aðstöðu til að skila áliti um launakjör bankamanna, þar eð ýmsir örðugleikra eru á því að afla upp- lýsinga um Jrau mál. Sambandsstjórn hefir nokkuð rætt þessi mál og má gera ráð fyrir að umbeðnar upplýsingar fáist áður en lýkur. Þess rná geta hér að launamálanefnd Félags starfsmanna Landsbankans hefir rætt launamál starfsmanna bankans á fundum og skrifað framkvæmdarstjórn bankans bréf um rnálið, en á þessu stigi málsins þykir ekki rétt að spá neinu um árrangurinn af starfi nefndarinnar. BRIDGE-KEPPNI. í ráði er að Bridge-keppni bankamanna fari fram á vegum S. í. B., nú í vetur. Verður hún með líku sniði og áður, en ekki hefir verið ákveðið hvenær hún fer fram. SKÁKKEPPNI. Skákkeppni rnilli starfsmanna Búnaðar- bankans og Landsbankans fór fram mið- vikudaginn 26. nóv. s. 1., í samkomusal starfsmanna Búnaðarbankans. Telft var á 10. borðurn og lauk keppninni með sigri Landsbankamanna sem hlaut 6 vinninga: 4. Vinningar féllu Jjannig: 1. Þorsteinn Þorsteinsson L. — vann Hauk Þorleifsson B. 2. Geir Sigurðsson B. — vann Jón Hall- dórsson L. 3. Róbert Þórðarson L. — jafntefli Gunn- ar Blöndal B. 4. Hinrik Thorarensen L. — vann Tryggva Pétursson B. 5. Sighvatur Jónasson L. — vann Sigurð Jónsson B. 6. Garðar Þórhallsson B. — vann Ein- varð Hallvarðsson L. 7. Anton Halldórsson L. — jafntefli Jón Sigurðsson B. 8. Ragnar Ingólfsson B. — vann Bjarna Magnússon L. 9. Sverrir Elíasson L. — vann Þórð Sig- urðsson B. 10. Ólafur Gunnlaugsson L. vann Ásmund Jónsson B. Keppnin var hin ánægjulegasta og er Jrað í annað sinn sem Búnaðarbankamenn og Landsbankamenn leiða sarnan hesta sína í skák. í fyrsta sinn sem keppnin fór fram lauk henni með sigri Landsbankamanna 6i/2:3t/9. BANKA MA NNA SKÓLI. Eins og frá var skýrt í síðasta blaði sótti Hörður Þórhallsson, Landsbankanum nám- skeið á vegum The Institute of Bankers, sem haldið var í Oxford í sumar og mun hann hér á öðrum stað í blaðinu gera les- endum blaðsins nokkra grein fyrir Jdví sem franr fór á mótinu. BANKABLAÐIÐ 37

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.