Bankablaðið - 01.12.1952, Side 35
Sextugur:
Ólafur Tkorarensen
Ólafur Thorarensen, útibússtjóri Lands-
banka íslands á Akureyri, varð sextugur 8.
þ. m.
Hann er fæddur á Akureyri 8. desember
1892 og ólst þar upp. Aðeins 15 ára gamall
gerðist liann starfsmaður útibús Lands-
bankans á Akureyri, 23. júní 1908. Hefir
hann verið í þjónustu þjóðbankans næstum
alltaf síðan eða yfir 44 ár, lengst af á Akur-
eyri. Þar var hann fyrst aðstoðarmaður og
síðar féhirðir. Þá starfaði hann um skeið
sem fulltrúi í aðalbankanum í Reykjavík
og gegndi þar ýmsum vandasömum trún-
aðarstörfum, frá 1919 til 1931, en 1.
júlí það ár tók hann við stjórn útibúsins á
Akureyri og hefir gegnt því starfi síðan.
Ólafur Thorarensen gerþekkir allar hlið-
ar bankastarfseminnar. Hann hefir starfað
hjá Landsbankanum 44 af 66 starfsárum
bankans og fylgst með vexti hans og þróun
og þeim stórkostlegu breytingum, sem orðið
hafa í atvinnuháttum, fjármálalífi og öllu
Jtjóðlífi okkar það, sem af er Jiessari öld.
María, Guðsmóðir, heldur syni sinum
í faðmi sér. Hún heldur á syni sínum, og
hin þjáða móðir horfir á son sinn. Hjarta
hennar er gegnumstungið sjö rýtingum.
En það leikur bros um ljómandi andlit
barnsins guðdómlega.
María svífur hljóðlega áfram.
Daginn eftir fann halti kirkjuvörðurinn
með geitarandlitið Artúr riddara limlestan
undir stóru ljósakrónunni.
Hann hefir vaxið með bankanum og hverj-
um vanda, sem borið hefir að höndum.
Hann hefir af langri reynslu öðlast mjög
víðtæka þekkiugu á Jjjóðarhögum og öllu
því, sem snertir starf hans sem bankastjóra.
Samviskusemi í starfi og prúðmennska í
framkomu einkenna fyrst og fremst Ólaf
Thorarensen. Bankastörf sín hefir hann
rækt [jannig að til fyrirmyndar er.
Þótt Ólafur Thorarensen sé nú talinn
sextugur, er hann enn á besta starfsaldri.
Ég óska honum allra heilla og blessunar á
þessum tímamótum og vona að þjóðbank-
inn fái enn lengi að njóta starfskrafta þessa
ágæta manns.
E. H.
ÁRSHÁTÍÐ BANKÁMANNA
verður að forfallalausu lialdin fyrra
hluta febrúarmánaðar.
Verður það tilhynnt nánar í bönkun-
um i nœsta mánuði.
BANKABLAÐIÐ 45