Bankablaðið - 01.12.1952, Síða 36

Bankablaðið - 01.12.1952, Síða 36
MÖTUNEYTI Hinn öri vöxtur Reykjavíkur á síðari ár- um hefur aukið verulega fjarlægðir niargra manna frá heimili á vinnustað. Og þrátt fyrir að strætisvagnakostur hefur aukizt, nægir mörgum mönnum naumlega venju- legur matmálstími til þess að fara heim til matar á hádegi. Hefur því verið horfið að því ráði hjá ýmsum fyrirtækjum að greiða fyrir stofnun mötuneytis fyrir starfsfólk fyrirtækjanna. Virðist sá háttur hafa víðast gefið góða raim. Enda fer mötuneytum innan fyrir- tækja sífjölgandi. Stjórn starfsmannafélags Útvegsbankans hefur að undanförnu unnið að því að koma á stofn mötuneyti í bankanum. Hefur hug- ur margra starfsmanna hneygzt að því, að til framkvæmda mætti koma hið fyrsta. Aðstæður til slíkrar starfsemi eru hinar beztu í bankanum, einkum eftir breytingar þær er gerðar voru á húsakynnum starfs- fólksins á þessu ári. Eftir að verkfall skall á hinn 1. des. síð- astl. og allar strætisvagnaferðir féllu nið- ur og matsölum var lokað átti fjöldi starfs- fólks engan kost að afla sér hádegisverðar. Varð þetta til þess að tekið var á ný til yfir- vegunar stofnun mötuneytis í bankanum. Stjórn starfsmannafélagsins skipaði því hinn 3. des. síðastl. þriggja manna nefnd til þess að hafa með höndum stjórn og starf- rækzlu mötuneytis. í þeirri nefnd eiga sæti, Erlingur Hjaltested, Birna Björnsdóttir og Matthías Guðmundsson. Er fyrirhugað, að sú nefnd taki til starfa strax að verkfallinu loknu. Hins vegar tók mötuneytið til starfa þann 6. des. síðastl. og veitir Adólf Björns- son, formaður starfsmannafélagsins, því for- stöðu þar til nefndin tekur til starfa. Væntanlega gefur hið fyrsta mötuneyti F ramltvæmdahanlii íslands Ríkisstjórnin liefir lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um Framkvæmdabanka íslands. í frumvarpinu og greinargerð seg- ir m. a.: Hlutverk bankans er að efla atvinnulíf og velmegun íslenzku þjóðarinnar með því að beita sér fyrir arðvænlegum framkvæmd- um, sem gagnlegar eru þjóðarbúinu og styðja þær. Skal starfsemi bankans í meg- inatriðum miðuð við Jaað að stuðla að aukn- um afköstum í framleiðslu og dreifingu (2. gr.). í 3. grein frumvarpsins segir svo um öflun fjár fyrir bankastarfsemi þessa: Ríkissjóður leggur Framkvæmdabank- anum til stofnfé, samtals að upphæð 101. 150.000 kr., sem hér segir: 1. Skuldabréf fyr- ir lánum úr Mótvirðissjóði: Tvö skuldabréf Sogsvirkjunarinnar að upphæð kr. 54.000.000 og tvö skuldabréf Laxárvirkjunarinnar að upphæð samtals kr. 21.000.000. Skuldabréf Aburðarverk- smiðjunnar h. f. 25.000.000 kr. Eftirtalin hlutabréf: í Aburðarverksmiðjunni h.f. kr. 6.000.000, í Raftækjaverksmiðjunni h. f. kr. 50.000 og í Eimskipafélagi íslands 100.000 krónur. Hlutabréf þessi má bankinn ekki selja né veðsetja án samþykkis Alþingis. Ríkissjóður leggur bankanum enn fremur til stofnfé til viðbótar, eftir því sem Alþingi kann að ákveða hverju sinni. Framkvæmdabankanum skal falin varzla Mótvirðissjóðs, og skulu um ráðstöfun hans gilda nánar tilteknar reglur. Þá á bankinn að vera til ráðuneytis í fjárfestingarmálum, að verzla með verðbréf og lána til arðbærra framkvæmda o. s. frv. bankamanna góða raun og verður fyrir- boð að fleiri verði stofnuð. 46 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.