Bankablaðið - 01.12.1966, Side 15
SKÁKÞÁTTUR
Hin árlega skákkeppni stofnana fór fram
á tímabilinu marz—apríl s. 1. Keppnin fór
fram í Súlnasalnum að Hótel Sögu. Að
venju var mikil þátttaka hinna ýmsu stofn-
ana. Var horfið að þvf ráði að skipta stofn-
unum eða sveitum í tvo riðla — 20 sveita —
eftir Monrad-kerfinu. Fyrra fyrirkomulag,
þar sem sveitum var raðað í fámenna riðla,
eftir styrkleika, þótti svifaseint í fram-
kvæmd.
Þátttaka bankanna var að venju góð og
sendu þeir sveitir til keppninnar sem hér
segir:
Búnaðarbanki íslands 2 sveitir, Lands-
banki íslands 3 sveitir og Útvegsbanki ís-
lands 2 sveitir.
Sigurvegarar urðu, eftir harða og tvísýna
keppni, sveit Búnaðarbankans, er hlaut 17
vinninga og er það í annað sinn, sem Bún-
aðarbankinn vinnur skákkeppni stofnana,
en alls hafa bankarnir unnið þessa keppni
þrisvar, þar eð Útvegsbankinn hefur unnið
hana einu sinni. í sveit sigurvegaranna
voru: Jón Kristinsson, Bragi Kristjánsson,
Arinbjörn Guðmundsson og Stefán Guð-
mundsson.
í öðru sæti var sveit Landsbankans með
161/2 vinning og í þriðja sæti var sveit
Stjórnarráðsins með 14]/2 vinning. Þá héldu
sæti sínu í A-riðli sveit Útvegsbankans og
B-sveit Landsbankans. Má ]rví með sanni
segja, að skáklífið blómstri vel í bönkunum.
Þá fór fram hraðskákkeppni stofnana og
sigraði sveit Búnaðarbankans með yfirburð-
um í annað sinn í röð.
í lok hraðskákkeppninnar voru sigurlaun
afhent. Bankamenn samfagna sveit Búnað-
arbankans með sigurinn.
Skákkeppjii Hreyfils og bankamanna.
Skákkeppni Hreyfils og bankamanna fór
fram 26. apríl s. 1. Keppnin hófst með sam-
eiginlegu borðhaldi í boði Seðlabanka ís-
lands.
Formaður S. í. B., Sigurður Örn Einars-
son, bauð gesti velkomna og þá sérstaklega
skákmenn Taflfélags Hreyfils. Óskaði hann
eftir áframhaldandi góðu samstarfi milli
bankamanna og Hreyfils, sem reynzt hefði
vel og skapað ánægju og góðan vinskap
þessara aðila.
Af hálfu Hreyfilsmanna flutti Guðbjart-
ur Guðmundsson þakkir og þakkaði rausn-
arlegar veitingar fyrr og síðar og ánægju-
legt samstarf á liðnum árum. Þá tilkynnti
hann, að Taflfélagið Hreyfill hefði ákveð-
ið að gefa bankamönnum verðlaunagrip
til að undirstrika ánægjulegt samstarf og
góð kynni við bankamenn í skákkeppni
þessara aðila á liðnum árum. Síðar skyldu
reglur settar um fyrirkomulag keppninnar
undir forsæti S. í. B.
Að loknu borðhaldi hófst skákkeppnin á
30 borðum og fór keppnin fram í hinum
nýju og glæsilegu salarkynnum starfsmanna
Útvegsbankans. Keppnin var að vanda
nokkuð jöfn og spennandi. Bankamenn
voru nær einráðir með sigur á tólf efstu
borðunum, en Hreyfils-menn minnkuðu
forskotið, þannig að síðasta skákin réði úr-
slitum. Spenna var mikil um úrslitin, skák-
inni lauk með sigri bankamanna og fóru
þeir því með sigur af hólmi. Hlutu 15i/í>
vinning gegn \4y2 vinningi Hreyfilsmanna.
Þar með unnu bankamenn í fyrsta sinn
mikinn og veglegan bikar, sem Sigmar í
Sigtúni hafði gefið til keppninnar. Áður
BANKABLAÐIÐ 13