Bankablaðið - 01.07.1974, Blaðsíða 16

Bankablaðið - 01.07.1974, Blaðsíða 16
— Að gefast ekki upp, þó því leiðist í íyrstu, heldur leitast við af fremsta megni að skapa með sér áhuga á starfinu hversu einfalt sem það kann að vera. — SegSu okkur a8 lokum, Vilhelm, hvafi þú mundir leggja fyrir þig, ef þú værir nú ungur og œttir lífid fyrir þér? — Eg mundi vist ekki fara í banka — Jíklega frekast í búskapinn. -—- Já, og nú stendur einmitt svo á, að FróSá mun vera laus til ábúðar. Helgi Hólm: Horshir banhamenn séttir heim Vikuna 4. — 10. nóvember sl. fór und- irritaður á námskeið, sem NBF (Norsk Bankfunksjonæres Forbund) stóð fyrir á Highland Hotel í Geilo. Þátttakendur voru fast að áttatíu, og voru þeir allir trúnað- armenn í bönkum og sparisjóðum víðsveg- ar að úr Noregi. Einn annar gestur var á námskeiðinu og var liann frá Danmörku, Kurt Cristensen. Nýliðar sóttu Kurs I, hvar aðalviðfangs- efnið var abmenn félagsmál, stjóm funda o. fl. þ. b. Þeir, sem vanari vom félags- málum sóttu Kurs H, og var okkur gestim- um ætluð þátttaka þar. Viðfangsefni á Kurs II voru mjög ábugaverð, og má deila þeim í tvo meginþætti. I fyrsta lagi var fjallað um „statistikk” og útreikninga til notkimar við undirbúning launasamninga. Þá var farið í gegnum vinnudeilulöggjöf- ina, en þessum hluta lauk með athugun á hinum ýmsn formum samningaviðræðna. Sá háttur var oftast hafður á, að lialdnir voru einn eða tveir fyrirlestrar, en síðan fóm fram umræður í hópum. Hver hóp- ur skilaði síðan sameiginlegu áliti, og Iiver dagur endaði venjulega með allsherj- arumræðum. Síðari hluti námskeiðsins fjallaði tun tvö mál, sem nú em mjög ofarlega á baugi í Noregi, Hið fyrra er yfirlýstur vilji norskra stjómvalda að setja lög, sem heim- ila ríki og sveitarstjórnum að skipa meiri- hluta í stjóm norskra banka og spari- sjóða. Með þessu hyggjast stjómvöld ná fastari tökmn á fjármálakerfi landsins og beita því meira sem stjómsýslutæki. Þátt- takendm- á námskeiðinu reyndu að gera sér grein f}TÍr, livaða álirif þetta gæti hugsanlega haft á hagi norskra banka- manna. Niðurstaðan var sú, að á þessu 14 — BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.