Bankablaðið - 01.07.1974, Page 26
viS 31. des. 1972, eiga aðeins starfsmenn
fimni af fimmtíu sparisjóðum landsins að-
ild að sambandinu, það er Starfsmannafél.
Sparisjóðs Hafnarfjarðar með 15 félaga,
Starfsmannafélag Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis með 10 félaga og Starfs-
mannafélag Sparisjóðs Kópavogs með 6
félaga, auk þess eru 6 einstaklingar fé-
lagar í sambandinu, það eru 3 starfsmenn
Sparisjóðs vélstjóra og 3 starfsmenn Spari-
sjóðsins Pundið, hér er um að ræða sam-
tals 37 af starfsfólki sparisjóða, en 31.
des. 1971 er starfsfólk sparisjóða yfir land-
ið í heild talið vera 136.
Eg gat þess áðan, að ekki lægju fyrir
fullmótaðar tillögur um svæðaskiptingu
landsins í þá átt sem hér er til umræðu.
Til þess að gefa hugmynd um, hvemig
útkoman yrði miðað við núgildandi kjör-
dæmaskiptingu, hef ég tekið saman yfirlit
yfir, annarsvegar fjölda bankastofnana í
hverju kjördæmi fyrir sig og hins vegar
yfir fjölda starfsmanna þessara stofnana í
hverju kjördæmi. Við lítum fyrst á skipt-
ingu stofnananna.
Fjöldi banka og sparisjóða eftir kjör-
dæmum í árslok 1972: á öllu landinu 116,
þar af 28 í Reykjavík.
StaHsmannafjöldi þeirra var á sama
tíma alls 1361 eða 136 lijá sparisjóðum og
1225 hjá bönkum.
Það væri ósanngjamt að minnast ekki á
helstu rök þeirra, sem hafa verið mótfalln-
ir stofnun svæðasambanda í þá átt, sem
hér er gert ráð fyrir. Þau rök lield ég
séu lielst þessi, að verða mundi klofn-
ingur innan starfsmannafélaganna, að erf-
iðleikar myndu skapast í sambandi við
greiðslur félagsgjalda og loks, að erfitt sé
að finna þá svæðaskiptingu, sem falli vel
saman samgöngulega séð.
Eg er þess fullviss að ekkert af þessu feng-
ist staðist dóm reynslunnar. Starfsmanna-
félög bankanna liafa það mörgum innri
sérmálum að sinna, að þótt breytt yrði að-
ildarskipulagi að heildarsamtökunum,
yrði það ekki til þess að veikja þau á
neinn hátt. Skipting eða greiðsla félags-
gjaida er smámál, sem auðvelt hlýtur að
vera að finna lausn á, þegar þar að kem-
ur, og sama má segja um síðasta atriðið,
samgöngur innan landshlutanna, að slíkt
þarf að liafa vel í huga þegar að því kem-
ur að ákveða skiptingu svæðanna, en eins
og þeim málmn er liáttað nú og með til-
liti til sífelldrar framþróunar í þeim mál-
um, þá ætti að vera auðvelt að finna lieppi-
lega lausn.
Það hefði verið fengur í því að geta
sagt liér frá því skipulagi, sem liaft er á
þessum rnálum í nágrannalöndum okkar,
en þar sem ég lief ekki náð því að afla
mér nógu haldgóðra gagna þar tun, vil
ég ekki fara út í þá sálma að þessu sinni,
hinsvegar vil ég henda starfshópumim á,
að hér hjá okkur em tveir ágætir norræn-
ir gestir, sem ég veit að munu fúslega veita
svör við þeim spumingum, sem til þeirra
væri leitað með í þessu sambandi.
Samband íslenskra bankamanna verður
senn, eða í janúar n. k. 40 ára gamalt.
Ekkert getur talist eðlilegra með tilliti til
breyttra þjóðfélagshátta og aðstæðna í
þjóðfélaginu, en að þörf sé endurskoðunar
á skipulagi og uppbyggingu samtakanna.
Sú endurskoðun hlýtur að beinast að
því að efla undirstöðurnar, sem sagt að
styrkja samheldni og samtakamáttinn.
Samlieldnin byggist á því, að þeir sem
samleið eiga þekki hver annan, viti um á-
hugaefni og þarfir hvers annars. Þar með
þarf að kveða niður flokkadrætti og
hreppapólitík milli einstakra félaga, sem
24 — BANKABLAÐIÐ