Bankablaðið - 01.11.1978, Page 6
Carl Platou, fráfarandi forseti NBU.
liðnum, en næsta þing verður haldið í Finn-
landi árið 1980.
Stefnan mörkuð
Sérstök stefnuyíirlýsing var samþykkt um
tiltekna málaflokka, sem mikið liafa verið
ræddir innan NBU. Hér er um að ræða at-
vinnulýðræði og meðákvörðunarrétt starfs-
manna, öryggismál og stefnu í vinnutímamál-
um bankamanna.
Stefnuyfirlýsingar í þessum málaflokkum
eru birtar í blaðinu hér að aftan.
vinnustað o. fl. Konr þar m. a. fram að íslend-
ingar og Finnar eru eftirbátar hinna Norður-
landanna, a. m. k. hvað varðar lagasetningu í
þeim efnum. Þriðja aðalmál þingsins var svo
öryggismál bankastarfsmanna, m. a. með tilliti
til bankarána, sem mjög hefur fjölgað á Norð-
urlöndunum á síðustu árum.
Nánar segir frá þessu í fréttatilkynningu frá
þinginu sem birt er hér á eftir.
Birte Roll Holm forseti NBU
Kosinn var nýr forseti NBU, Birte Roll
Holm frá Danmörku. Carl Platou, frá Noregi,
gaf ekki kost á sér til endurkjörs, en hann
hafði verið forseti sambandsins um 2ja ára
skeið.
Birte Roll Hohns er 36 ára gömul og hefur
starfað við Kjöbenhavns Handelsbank, útibúi
bankans í Árósum, en síðar í aðalbankanum í
Kaupmannahöfn. Þar hefur hún unnið á
fræðsludeild bankans, sem sér um fræðslu fyr-
ir starfsmenn og jáfnframt í upplýsingadeild
bankans.
Árið 1968 var hún kjörin trúnaðarmaður
starfsmanna og skömmu síðar var hún kjörin
í stjórn starfsmannafélagsins.
Árið 1974 var hún kjörin í stjórn Danska
bankamannasambandsins (DBL) og hefnr ver-
ið formaður þess frá árinu 1975.
Samband ísl. bankamanna væntir góðs af
samstarfinu við Birte Roll Holm.
Tækniþróun — aðbúnaður á vinnustað —
öryggismál
Þrjú meginefni voru til umræðu á þinginu.
í fyrsta lagi var rætt um tækniþróun og tölvu-
notkun í bönkum með tilliti til hagsmuna
starfsmanna. í öðru lagi var fjallað um um-
hverfismál, hollustuhætti og starfsumhverfi á
6 BANKABLAÐIÐ