Bankablaðið - 01.11.1978, Side 7
kongress
REYKJAVIK
28.8-1.9 1978
FRÉTTATILKYNNING
frá þingi NBU
Þróun, sem stefnir að aukinni sjálfvirkni bankakerfisins á sér nú stað um
allan heim. Sanrkvænrt bandarískunr könnunum er hægt að gera um 80%
eða meira, af allri bankastarfsenri sjálfvirka. Þetta kom fram á þingi nor-
rænna bankamanna, NBU, sem haldið var í Reykjavík dagana 28. 8. til 1. 9.
Unr 70 fulltrúar frá norrænu bankamannasanrböndunum, með um 120
þúsund félagsmenn sér að baki, ræddu þróun tæknimála og vinnuumhverfi
bankastarfsnranna á þessu þingi.
Kosinn var nýr forseti, en Carl Platou frá Norska bankamannasamband-
inu, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Fyrir valinu varð Birte Roll Holm, en
hún er fornraður Danska bankamannasambandsins. Hún er 36 ára gömul
og lrefur unnið í banka síðan 1959, en lrún varð formaður bankamanna-
sambandsins árið 1975.
Tækniþróunin á sviði bankanrála hefur til þessa átt sér stað í samræmi við
óskir atvinnurekanda og tölvufranrleiðenda, segir Birte Roll Holm. Samtök
launjreganna hafa haft mjög takmörkuð áhrif á þessa þróun, ef nokkra. Til
þess að ráða bót á þessum vandamálum, senr eru þessari þróun samfara, þá
verða að nást samningar, senr tryggja starfsfólkinu rétt til þátttöku í stjórn
bankanna, meðákvörðunarréttur launþegum til lranda.
Þingið veitti stjórn norræna bankamannasambandsins umboð til þess að
semja stefnuskrá, senr á að grundvallast á Jreim umræðum, sem fóru franr
á Jringinu í Reykjavík.
Annað aðalnrál þingsins var vinnuumhverfi og öryggismál. Sambandið
lýsti yfir stuðningi sínunr við kröfur finnskra og íslenskra bankamanna unr
vinnuumhverfislöggjöf, sem þegar er til á hinum Norðurlöndunum. Þessi
stuðningsyfirlýsing sambandsins byggir á þeirri staðreynd, að norræna ráð-
herranefndin hefur sanrjrykkt drög að samnorrænni vinnuumhverfislöggjöf
árið 1977.
Eitt af mikilvægustu öryggismálum bankamanna er vernd gegn bankaræn-
ingjum. Fjöldi bankarána fer stöðugt vaxandi í Svíjrjóð og Danmörku. Árið
1977 voru framin meira en 150 banka- og póstrán í Svíþjóð.
Þingið áleit það nrikilvægt að konra á betri samvinnu á milli bankanna,
lögreglunnar og launjregasamtaka bankamanna, bæði hvað varðar stað-
bundna samvinnu og einnig milli landa. Bankastarfsmenn verða að fá afger-
andi ákvörðunarrétt varðandi skipulagningu öryggismála innan bankanna.
I ályktun Jringsins er einnig talað um aukningu rannsóknarstarfa á sviði
félagssálfræðilegs atvinnuunrhverfis (psykosociala arbetsmiljöomrádet).
Þingið sanrjrykkti einnig stefnskrá varðandi meðákvörðunarrétt, vinnu-
tínra og öryggismál lrankamanna.
BANKMAWUUNONEH
BANKABLAÐIÐ 7