Bankablaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 8

Bankablaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 8
kongress REYKJAVIK 28.8-1.9 1978 NBU um atvinnuöryggi Almennt markmið Tryggja verður atvinnuöryggi bankastarfs- manna. Atvinnuöryggi er ekki einungis trygg- ing gegn uppsögn án eðlilegrar ástæðu. Breytt vinnutilhögun leiðir einnig oft af sér öryggis- leysi fyrir starfsmenn, svo og umhverfi og fé- lagslegar aðstæður á vinnustað ásamt málum er varða starfsmannastjórn. Öryggismál, líkamleg sem andleg, skipta einstaklinginn svo miklu máli, að allar aðgerð- ir, sem hafa bein áhrif á öryggi í atvinnu, verða að sitja í algjöru fyrirrúmi. Tryggja verður að vinnu og vinnuaðstöðu bankamanna verði ekki breytt í framtíðinni án raunvernlegs samráðs við starfsmennina sjálfa. Þá verður að fá tryggingu fyrir Jrví að mikilvægar breytingar, m. a. vegna hagræðing- ar og aukinnar sjálfvirkni, verði háðar með- ákvörðunarrétti, og að þessi réttur sé tryggður ]>egar við upphaf ráðagerða um breytingar og hagræðingaraðgerðir. Starfsmenn verða Jrví að hafa möguleika á að fylgjast með þróuninni og taka þátt í ákvarðanatöku frá byrjun. Stefnuskrá Með hliðsjón af ofangreindum markmiðum, hvetur NBU aðildarsambönd sín til þess að taka upp eftirfarandi í stefnuskrár sínar: Að gert sé ráð fyrir möguleika á að fara á eftir- laun fyrir lögboðinn aldur með samkomu- lagi á milli banka og viðkomandi starfs- manns. Að tilflutningar í starfi og endurhæfing eldri starfsmanna með skerta starfsgetu eigi sér stað af mikili nærgætni og virðingu fyrir þeim, sem um margra ára skeið hafa starf- að í þágu viðkomandi banka. Þetta getur Jrýtt að bankinn verði að fallast á tíma- bundið offramboð vinnuafls og verði að bjóða upp á fleiri starfsmöguleika við end- urskipulagningu starfsliðsins. Að bæði grunn- og framhaldsmenntun nái til allra starfsmanna og sé í samræmi við Jrarf- ir hvers og eins. Markmiðið á að vera að allir hafi möguleika á að Jrróa hæfileika sína. Aðstjórn bankans og fulltrúar starfsfólksins útbúi sameisinleoa resflur um heildar- o o o stefnu bankans í málefnum starfsmanna. Allir starfsmenn fái upplýsingar um inni- hald þessarar heildarstefnu. Heildarstefna bankans um málefni starfsmanna á m. a. að ákveða fjölda starfsmanna, stefnu fyrirtæk- isins í ráðningarmálum, endurhæfingar- starfsemina, menntun, sem og þær reglur er gilda fyrir trúnaðarmenn og þátttöku Jreirra í störfum fyrir einstök starfsmanna- félög og samtök bankamanna. 8 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.