Bankablaðið - 01.11.1978, Síða 15

Bankablaðið - 01.11.1978, Síða 15
Nýp skólastjóri Bankamannaskólans Frá 1. september sl. var ráðinn nýr skóla- stjóri að Bankamannaskólannm í fullt starf, en Gunnar Blöndal, deildarstj. í Búnaðarbank- anum, hefur gegnt starfi skólastjóra frá stofn- un skólans. Um stöðuna sóttn þrír. Ráðinn var Þorsteinn Magnússon viðskiptafræðingur, sem kennt hefur á reiknivélar við skólann frá upphafi, en hefur annars kennt við Verzlnnar- skóla Islands hagnýtar viðskiptagreinar, aðal- lega bókfærslu. Þorsteinn er fæddur 17. október 1933 í Reykjavík og lauk stúdentsprófi frá Verzlún arskólanum árið 1955, og prófi í viðskipta- fræðum við Háskóla íslands 1963. Eftir stúd- entspróf starfaði hann hjá Magnúsi Kjaran, heildverzlun, en jafnliliða háskólanámi hjá Skrifstofuvélnm og hjá Iðnaðarmálastofnun ís- lands. Strax að afloknu háskólaprófi hóf hann störf við Verzlunarskólann. Ank þess hefur hann kennt við ýmsa aðra skóla á námskeið- um, s. s. Stjórnunarfélags íslands, viðskipta- deild HÍ, Bréfaskólann og Einkaritaraskólann. Hann hefur á seinni árum mikið starfað fyrir yfirvöld menntamála við skiptdagningu við- skiptabrauta í framhaldsskólum og hinum nýju fjölbrautarskólum, og annast m. a. samn- ingu kennslubóka, einn og í hópi með öðrum, í ýmsum verzlunargreinum. Kennslubækur í bókfærslu hefur hann samið, sem notaðar eru víða í skólum. Sem sumarvinnu hefur hann m. a. starfað við fararstjórn erlendis og stjórn- sýslnstörf fyrir daggjaldanefnd sjúkrahúsa. Þorsteinn er kvæntur Þórdísi Þorgeirsdótt- ur og eiga þau þrjú börn. Samband íslenskra bankamanna býður Þor- stein Magmisson velkominn í hið nýja starf. Þorsteinn Magnússon, skólastjórí Bankamannaskólans. BANKABLAÐIÐ 15

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.