Bankablaðið - 01.11.1978, Side 18

Bankablaðið - 01.11.1978, Side 18
FMEBSLUSTARF SIB Stjórn SÍB hefur samþykkt áætlun um fræðslustarf á vegum sambandsins næstu mánuöi. Haldið verður áfram þar sem frá var horfið sl. vor, en jafnframt er gert ráð fyrir ýmsum nýjungum. Sumt af því sem hér er greint frá mun þeg- ar hafa komið til framkvæmda þegar blaðið kemur út. Fundur með formönnum starfsmannafélag- anna 26. september sl. Rætt var almennt um túlkun kjarasamninga og ágreiningsmál sem upp hafa komið. Þá var rætt um röðun starfsmanna í launa- flokka. Gerður var samanburður á röðun í launaflokka milli einstakra banka. Reynt var að safna sem ítarlegustum upplýsingum um röðunarmál almennt, sem m. a. mætti nota til leiðbeiningar við kröfugerð fyrir næstu kjara- samninga SIB. Ndmskeið fyrir trúnaðarmenn á vegum SÍB og FSLÍ 2S. september sl. Námskeiðið var haldið á skrifstofu SÍB. Á námskeiðið voru mættir nær allir trúnaðar- menn Félags starfsmanna Landsbanka íslands auk stjórnarmanna. M. a. var rætt um starf og skipulag SÍB, lög SÍB, trúnaðarmenn, réttar- stöðu þeirra og starf og samningsrétt SÍB. Síð- ari hluta dagsins voru kjarasamningar SÍB ræddir, skýrðir og túlkaðir. Námskeið fyrir trúnaðarmenn SÍB 17., 1S. og 19. október sl. Fundarstaður skrifstofa SÍB. Hér er boðið upp á tvö til þrjú námskeið fyrir trúnaðar- 18 BANKABLAÐIÐ menn eftir því sem þurfa jrykir. Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað nýjum trúnaðarmönn- um. Farið er í undirstöðuatriði starfa trúnað- armanns, starfsemi SÍB og félaganna, skýringn og túlkun gildandi kjarasamninga o. fl. Námskeið fyrir trúnaðarmenn úti á landi 25. og 26. október Haldin verða sams konar námskeið fyrir trúnaðarmenn úti á landi eftir því sem óskað verður. Ráðstefna um tölvuþróun i bönkum 7.-S. des. Fundarstaður skrifstofa SÍB. Gert er ráð fyr- ir að erindi verið flutt um tölvuvæðingu í bönkum á íslandi, menntunarmál banka- manna með tilliti til tölvuþróunar, þróun rnála á hinum Norðurlöndunum og viðhorf SÍB. Að því loknu verður unnið í hópvinnu, en jress á milli verður safnast saman til al- mennra umræðna. Gert er ráð fyrir heimsókn í Reiknistofu bankanna og loks verði niðurstöður kynntar og ræddar. Námskeið í hópefli og framhaldsnámskeið fyrir trúnaðarmenn SIB Námskeið þetta er í undirbúningi og er fyr- irhugaður fundartími janúar eða byrjun fe- brúar 1979. Um helmingur af námskeiðstímanum yrði varið í það sem nefnt hefur verið hópefli, leið- beinandi yrði Gunnar Árnason sálfræðingur. Viðfangsefni hópeflis er að fjalla um störf í Framh. á bls. 20.

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.