Bankablaðið - 01.11.1978, Page 19
Agreiningsmál fyrir
Kjaranefnd
Kjaranefnd fjallar um ýmis ágreiningsmál
sem upp koma varðandi túlkun og framkvæmd
kjarasamninga. í nefndinni eiga sæti 3 fulltrú-
ar frá SÍB og 3 frá bönkunum.
Kjaranefnd hefur haldið nokkra fundi þar
sem rædd hafa verið ýmis ágreiningsmál sem
upp hafa komið varðandi kjarasamninga og
vísað hefur verið til SÍB.
Hér á eftir eru rakin þau mál sem niðurstaða
hefur fengist um:
I. Lágmarksútkall. Gr. 2.3.4.
Grein 2.3.4. hljóðar svo:
„Þegar starfsmaður er kallaður til vinnu,
sem ekki er í beinu framhaldi af vinnu hans,
skal greitt yfirvinnukaup fyrir a. m. k. 3 klst.
á virkum dögum og a. m. k. 5 klst. á laugar-
dögum, sunnudögum og sérstökum frídögum,
nema reglulegur vinnutími hefjist innan 3 eða
5 klst. frá því að liann fór til vinnu.
Sú spurning kom upp, hvort þessi grein ætti
við í öllum tilfellum og var gerð svofelld bók-
un í Kjaranefnd:
„Samkomulag er um, að grein 2.3.4. eigi við
um hvers konar yfirvinnu sem ekki er í beinu
framhaldi af daglegri vinnu starfsmanns, nema
reglulegur vinnutími liefjist innan 3 klst. frá
því starfsmaður fór til vinnu.“
Samkvæmt þessu ber að greiða 3 eða 5 klst.
í öllum tilfellum þegar um útköll er að ræða
á þeim tímum sem um ræðir í greininni.
II. 5 og 6% álag. Gr. 1.1.8.
Grein 1.1.8. er eftirfarandi:
„Starfsmaður, sem starfað hefur í 10 ár í
banka, skal fá 5% álag á laun þau, sem hann
fær skv. 1.1.2. Eftir 15 ára starf verði álag þetta
6%.“
Spurning getur verið um túlkun greinar-
innar, þegar starfsmaður hefur unnið hluta
úr starfi. Ber t. d. starfsmanni, sem gegnt hef-
ur hálfu starli i' 10 ár og fer þá í fullt starf, 5%
álag á full laun eða aðeins hluta þeirra?
I Kjaranefnd var gert svofellt samkomulag
um málið:
„Starfsmaður, sem gegnir eða gegrrt hefur
hluta úr starfi, þó ekki minna en hálfu starfi,
ávinnur sér rétt til álags samkvæmt grein 1.1.8.
á sama hátt og starfsmaður í fullu starfi.“
Samkvæmt þessu skiptir því ekki máli þó
starfsmaður hafi ekki verið í fullu starfi. Hann
ávinnur sér engu að síður rétt til 5 og 6%
álags á sama hátt og hann hefði gegnt fullu
starfi.
III. Barnsbnrðarleyfi. Gr. 7.6.1.
Agreiningur varð um rétt konu til barns-
burðarleyfis, sem hafði veikst nokkru fyrir
barnsburðinn og lagt fram læknisvottorð þar
um. Spurning var, hvort hún hefði eytt hluta
af barnsburðarleyfinu þann tíma sem hún var
veik fyrir barnsburðinn.
Samkomnlag varð um það í Kjaranefnd, að
kona þessi ætti rétt á óskertu barnsburðarleyfi
(3 mán.) eftir fæðingu barnsins, enda hafði
hún sannað veikindi sín fyrir barnsburðinn
með læknisvottorði.
IV. Vinna í livöldmatartima milli kl. 19 og 20
Grein 2.3.3.
„Sé unnið í matar- og kaffitíma þannig að
vinnuhlé nái ekki fullum umsömdum tíma,
BANKABLAÐIÐ 19